Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 121

15. febrúar 2023, kl. 16:30 til 19:45, Í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Malgorzata Beata Libera, varamaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varamaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Eggertsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 785 liður 7

    Fundargerð fræðslunefndar frá 15. febrúar lögð fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.

  • Bæjarstjórn, fundur 348 liður 5

    Fundargerð 121. fundar fræðslunefndar frá 15. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Til máls tók: Birgir Jónsson

    Fundargerð 121. fundar fræðslunefndar er samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023

    Mál 2210162 Allur ferill málsins

    Skólastjórar Kærabæjar, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Eskifjarðarskóla kynntu starfsáætlun og skólanámskrár skólanna og fræðslunefnd fékk jafnframt leiðsögn um húsnæði Skólamiðstöðvar Fáskrúðsfjarðar. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum fyrir góða leiðsögn, kynningar og greinargóð svör og samþykkir fyrirliggjandi áætlanir og skólanámskrár.

  2. 2. Skóladagatöl 2023-2024

    Mál 2301073 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga sem gerir ráð fyrir sameiginlegum starfsdegi leikskóla 15.september 2023 og sameiginlegum starfsdegi grunn- og tónlistarskóla 18. ágúst 2023. Einnig tillaga um að skólabyrjun grunnskóla verði 22.ágúst næstkomandi. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi dagsetningar. Frekari umræðu um skóladagatöl skólanna er frestað til næsta fundar nefndarinnar.

  3. 3. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð

    Mál 2302067 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja reglur um úthlutun kennslustunda til grunnskóla. Samkvæmt áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðarbyggðar 2023-2025 er gert ráð fyrir að úthlutunarlíkön leik- og grunnskóla Fjarðabyggðar verði endurskoðuð með það að leiðarljósi að efla enn frekar faglegt starf skólanna. Farið var yfir hugmyndir að breytingum og fræðslustjóra falið að kalla saman skólastjórnendur grunnskólanna ásamt tveimur fulltrúum nefndarinnar, Birgi Jónssyni og Inga Steini Freysteinssyni. Frestað til næsta fundar.

  4. 4. Skólamáltíðir grunnskóla

    Mál 2210173 Allur ferill málsins

    Fjarðabyggð hefur með góðfúslegu leyfi Akureyrarbæjar fengið að nýta sér matseðla og uppskriftir leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar. Breytingar voru gerðar á matseðlum leik- og grunnskóla fyrir um ári síðan og jafnframt var gerður nýr samningur um framleiðslu á meirihluta máltíða í grunnskólum Fjarðabyggðar til þriggja ára. Samhliða þessum breytingum var meðal annars rætt um að fá næringarfræðing til að líta yfir matseðla, uppskriftir og framleiðslu þeirra á samningstímanum svo og að kanna matarsóun. Fræðlunefnd felur fræðslustjóra að vinna málið áfram fyrir næsta fund.