Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 122

8. mars 2023, kl. 16:30 til 18:20, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Malgorzata Beata Libera, varamaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 788 liður 14

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. mars lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 349 liður 7

    Til máls tók Birgir Jónsson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skóladagatöl 2023-2024

    Mál 2301073 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð fyrir skólaárið 2023 - 2024. Fræðslustjóri gerði grein fyrir vinnu við gerð skóladagatalanna. Farið er eftir verklagsreglum um staðfestingu skóladagatala en þar er kveðið á um sameiginlega skólabyrjun grunnskólanna, sumarlokun leikskólanna og einn sameiginlegan starfsdag skólanna. Þar fyrir utan stilla skólarnir sig saman um nokkra aðra daga, t.d. eru vetrarfrí grunnskólanna eins á vorönn 2024 og í sömu viku að hausti 2023.Þá eru flestir skipulagsdagar leikskóla settir á daga sem ekki eru nemendadagar í grunnskóla eða fjórir til fimm dagar af sex skipulagsdögum samtals. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.

  2. 2. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð

    Mál 2302067 Allur ferill málsins

    Til umræðu var bréf frá Mennta og barnamálaráðuneytinu um ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla ásamt kynningarbréfi á fundarröð ráðuneytisins. Fundir á Austurlandi verða haldnir 29. mars og 24. maí. Áframhaldandi umræður um reglur um úthlutun kennslustundafjölda til grunnskóla í Fjarðabyggð. Fulltrúum fræðslunefndar ásamt skólastjórum grunnskóla, fræðslustjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að vinna málið áfram og skila hugmyndum fyrir næsta fund nefndarinnar.

  3. 3. Barnvænt sveitarfélag 2021-2022

    Mál 2109174 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð Fjarðabyggðar gerði grein fyrir helstu niðurstöðum Ungmennaþings sem haldið var í Fjarðabyggð 1. mars 2023. Ungmennaþingið tókst vel og margar góðar hugmyndir komu frá ungmennunum um það hvernig við getum gert gott samfélag ennþá betra. Fræðslunefnd þakkar ungmennaráði fyrir góða kynningu og óskar því velfarnaðar í þeim verkefnum sem það tekur sér fyrir hendur.