Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 788

13. mars 2023, kl. 08:30 til 12:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 349 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis

    Mál 2303078 Allur ferill málsins

    Framlögð til staðfestingar samstarfsyfirlýsing við leigufélagið Bríet varðandi íbúðauppbyggingu í Fjarðabyggð. Bríet byggir 4 íbúðir, tvær á Eskifirði og tvær á Reyðarfirði.

    Bæjarráð staðfestir samstarfsyfirlýsinguna og fagnar framgangi í byggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð.

  2. 2. Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa þess efnis að hafin verði vinna við undirbúning að nýrri heimasíðu fyrir Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að gerð nýrrar heimasíðu á grundvelli minnisblaðsins. Tillögur verði lagðar fyrir bæjarráð til staðfestingar.

  3. 3. Tjaldsvæði 2022

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra og umhverfis- og skipulagfulltrúa varðandi framtíð tjaldsvæða í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að frá og með haustinu 2023 verði tjaldsvæði sveitarfélagsins boðin til sölu. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að undirbúa tillögur að söluferli tjaldsvæðanna og leggja fyrir bæjarráð.

  4. 4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Mikið tjón varð á safninu í óveðri haustið 2022 og eyðilögðust þá tveir braggar í eigu safnsins og aðalsýningarhús þess skemmdist verulega. Ekki verður hægt að endurbæta húsnæði fyrir sumarið 2023.

    Vísað frá stjórn Menningarstofu og Safnastofnunar tillögu um að hafa Stríðsárasafnið lokað. Leggur stjórnin til við bæjarráð breytingar á starfsáætlun menningarmála. Jafnframt vísar stjórn málefnum stríðsárasafnsins til fjárhagsáætlunargerðar 2024 varðandi fjármögnun endurbóta húsnæðisins og að lokið verði við endurgerð á þeim bragga sem eftir stendur. Forstöðumanni safnastofnunar falið að skoða útfærslu á sýningu á Reyðarfirði sumarið 2023 og leggja tillögur fyrir stjórnina.

    Bæjarráð staðfestir ákvörðun stjórnarinnar varðandi lokun safnsins og leggur jafnframt til að aðrir kostir verði skoðaðir með tilliti til niðurstöðu starfshóps.

  5. 5. Málefni fjölskyldusviðs

    Mál 2303095 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni fjölskyldusviðs.

  6. 6. Búsetuúrræði-Trúnaðarmál

    Mál 2301106 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnda til kynningar í bæjarráði stöðuskýrslu sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu varðandi nýtt búsetuúrræði í Fjarðabyggð.

    Lagt fram til kynningar.

  7. 7. Notendaráð fatlaðs fólks

    Mál 2211046 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnda minnisblaði stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu, auk tillögu að samþykktum fyrir samráðshóp um málefni fatlaðra í Fjarðabyggð. Í minnisblaðinu er lagt til að stofnaður verði opinn samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Fjarðabyggð, og auk þess lögð fram tillaga að samþykkt fyrir ráðið.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að samþykktum fyrir samráðshóp um málefni fatlaðra. Vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.

  8. 8. Erindi varðandi ágangi búfjár við Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2303069 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi Ívars Ingimarssonar varðandi ágang búfjár við Óseyri í Stöðvarfirði.

    Erindi fram lagt og kynnt og vísað til landbúnaðarnefndar.

  9. 9. Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður

    Mál 2302212 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 8, Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti stækkun lóðar en vísar erindi til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi.

  10. 10. Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST

    Mál 2212134 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- opg skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að sameiginlegri samþykkt fyrir sveitarfélög á starfssvæði HAUST sem kemur í stað sérstakrar samþykktar um umgengni og þrifnað utanhúss.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samþykkktina og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  11. 11. Fræðsluferð - Vindorka í Noregi

    Mál 2303089 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Grænvangi vegna fræðsluferðar til Noregs vegna Vindorku. Sendiráð Íslands í Noregi í samstarfi við Grænvang auk fjölda samstarfsaðila í Noregi standa saman að skipulagningu vettvangs- og fræðsluferðar til Noregs um hagnýtingu vindorku dagana 25. til 29. apríl næstkomandi.

    Bæjarráð samþykkir að formaður umhverfis- og skipulagsnefndar fari í fræðsluferð. Ragnar Sigurðsson situr hjá.

  12. 12. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2022 til 2023

    Mál 2302204 Allur ferill málsins

    Framlagðir til kynningar vinnslusamningar vegna byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2022 - 2023.

    Bæjarráð samþykkir vinnslusamninga fyrir sitt leyti.

  13. 13. Tillaga Sjálfstæðisflokksins um úttekt á stjórnsýslu Fjarðabyggðar

    Mál 2303083 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga frá Sjálfstæðisflokknum þess efnis að framkvæmd verði stjórnsýsluútekt hjá Fjarðabyggð.

    1.

    Úttekt á stjórnsýslu Fjarðabyggðar

    Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að framkvæmd verði stjórnsýsluúttekt hjá Fjarðabyggð. Fenginn verði óháður aðili til að framkvæma úttektina sem skal fara fram án tafar og í samvinnu og samráði við bæjarráð. Í verkefninu verður sérstaklega horft til þess hvernig auka megi skilvirkni og hagræðingu í rekstri og starfsemi sveitarfélagsins. Þá verði sérstaklega horft til starfsumhverfis á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins með það fyrir augum að skapa öflugt starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr starfsmannaveltu.

    Eftirfarandi markmið skulu lögð til grundvallar:

    - Vinna greiningu og leggja mat á styrkleika og veikleika í þjónustu, verkaskiptingu og samstarfi.

    - Koma með tillögur að aukinni skilvirkni og hagræðingu í stjórnkerfi og rekstri sveitarfélagsins.

    - Gera úrbótaáætlun á starfsumhverfi bæjarskrifstofu.

    Tryggja skal aðkomu starfsfólks, íbúa og annarra hagsmunaðila með viðtölum og vinnustofu. Samhliða verkefninu er gert er ráð fyrir því að opnað verði fyrir ábendingagátt fyrir íbúa þar sem hægt er að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum sem falla að meginmarkmiðum úttektarinnar. Við lok verksins skal liggja fyrir forgangsröðuð úrbótaáætlun fyrir sveitarfélagið.

    Bæjarráð er ásátt um eftirfarandi tillögu.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að framkvæmd verði stöðugreining á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fenginn verði óháður aðili til að framkvæma greininguna í samvinnu og samráði við bæjarráð. Í verkefninu verður sérstaklega horft til þess hvernig auka megi skilvirkni og árangur í rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þar verði sérstaklega horft til starfsumhverfis á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins með það fyrir augum að skapa öflugt starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr starfsmannaveltu.

    Eftirfarandi verkþættir skulu vera hluti af verkefninu:

    - Vinna greiningu og leggja mat á styrkleika og veikleika í þjónustu, verkskiptingu og samstarfi innan stjórnsýslu Fjarðabyggðar

    - Koma með tillögur að aukinni skilvirkni, árangri og hagræðingu í stjórnkerfi og rekstri sveitarfélagsins

    -Koma með tillögur að úrbótaráætlun á starfsumhverfi starfsmanna á bæjarskrifstofu.

    - Við lok verksins verði lögð fram forgangsröðun úrbótaverkefna.

    Tryggja skal aðkomu starfsfólks og annarra hagaðila að greiningarferlinu í samráði við bæjarráð. Mikilvægt er á þessum tímapunkti að ná vel utan um núverandi stöðu svo úrbætur verði markvissar, skilvirkar og til þess fallnar að efla samfélagið til framtíðar.

    Bæjarstjóra falið að afla tilboð í verkefnið og leggja fyrir bæjarráð niðurstöður þeirra.

  14. 14. Fræðslunefnd - 122

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 Skóladagatöl 2023-20242301073
    2. 14.2 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
    3. 14.3 Barnvænt sveitarfélag 2021-20222109174
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 114

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 114. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. mars 2023 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Undanþága Dreka fyrir reglum rekstrar- og uppbyggingarstyrkja
    2. 15.2 Barnvænt sveitarfélag 2021-2022
    3. 15.3 Stýrihópur vegna stefnumótun íþróttamannvirkja
    4. 15.4 Tímaúthlutarnir og notkunarmöguleikar íþróttahúss Reyðarfjarðar
  16. 16. Félagsmálanefnd - 163

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 163. fundar félagsmálanefndar frá 6. mars 2023 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 16.1 Notendaráð fatlaðs fólks2211046
    2. 16.2 Búsetuúrræði-Trúnaðarmál2301106
    3. 16.3 Kynning á starfi á fjölskyldusviði2303035
  17. 17. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 20. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. mars lögð fram til afdgreiðslu.

    1. 17.2 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302173
    2. 17.3 Sólvellir 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2303004
    3. 17.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 192302182
    4. 17.5 Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður2302212
    5. 17.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugata 32302200
    6. 17.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðagata 322302155
    7. 17.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59a2302175
    8. 17.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59b2302172
    9. 17.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 472302148
    10. 17.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Þórhólsgata 62302166
    11. 17.12 Reglur um lóðarúthlutanir2302135
    12. 17.13 Refa- og minkaveiði 2021-20222201007
    13. 17.14 Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins2302037
    14. 17.15 Deiliskipulag Fagridalur - Eskifirði - íbúðasvæði2303020
    15. 17.16 Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST2212134
    16. 17.16 Tjaldsvæði á Stöðvarfirði2212134
    17. 17.17 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
  18. 18. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 7. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu.

    1. 18.1 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    2. 18.2 Umsókn um styrki til menningarmála2301064
    3. 18.3 Umsókn um styrki til menningarmála2301136
    4. 18.4 Umsókn um styrki til menningarmála2301157
    5. 18.5 Umsókn um styrki til menningarmála2301167
    6. 18.6 Umsókn um styrki til menningarmála2302024
    7. 18.7 Umsókn um styrki til menningarmála2303064
    8. 18.8 Umsókn um styrki til menningarmála2302035
    9. 18.9 Konur, draumar og brauð2207019
    10. 18.10 Umsókn um styrki til menningarmála2302061
    11. 18.11 Umsókn um styrki til menningarmála2302064
    12. 18.12 Umsókn um styrki til menningarmála2302068
    13. 18.13 Umsókn um styrki til menningarmála2302069
    14. 18.14 Umsókn um styrki til menningarmála2302070
    15. 18.15 Umsókn um styrki til menningarmála2302071
    16. 18.16 Umsókn um styrki til menningarmála2302072
    17. 18.17 Umsókn um styrki til menningarmála2302073
    18. 18.18 Umsókn um styrki til menningarmála2302074
    19. 18.19 Umsókn um styrki til menningarmála2302075
    20. 18.20 Umsókn um styrki til menningarmála2302076
    21. 18.21 Umsókn um styrki til menningarmála2302077
    22. 18.22 Umsókn um styrki til menningarmála2302078
    23. 18.23 Umsókn um styrki til menningarmála2302079
    24. 18.24 Umsókn um styrki til menningarmála2302080
    25. 18.25 Umsókn um styrki til menningarmála2302081
    26. 18.26 Umsókn um styrki til menningarmála2302082