Félagsmálanefnd, fundur 163
7. mars 2023, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Inga Rún Beck Sigfúsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Þórhallur Árnason, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 788 liður 16
Fundargerð 163. fundar félagsmálanefndar frá 6. mars 2023 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 349 liður 5
Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð félgasmálanefndar frá 7. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Notendaráð fatlaðs fólks
Mál 2211046 Allur ferill málsins
Um nokkurt skeið hefur verið leitað að áhugasömum þátttakendum í notendaráð fatlaðs fólks í Fjarðabyggð í samstarfi við hagsmunasamtök en ekki gengið. Félagsmálanefnd samþykkir að stofnaður verði opnari samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Fjarðabyggð sem starfar á grunni samþykktar.
Máli vísað til bæjarráðs.
-
2. Búsetuúrræði-Trúnaðarmál
Mál 2301106 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri og stjórnandi stoð- og stuðningsþjónustu kynna vinnu við búsetuúrræði, drög að kostnaðaráætlun. Sviðstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna áfram minnisblað í samræmi við umræður á fundinum.
Vísað til bæjarráðs.
-
3. Kynning á starfi á fjölskyldusviði
Mál 2303035 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri kynnir verkefni á fjölskyldusviði.
Heimsóknir til félaga eldri borgara og kynningar til þeirra á stefnumótun í málaflokknum. Heimsókn frá sveitarfélaginu Hornafirði. Nýafstaðið Ungmennaþing o.fl.
-
4. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla
Mál 2003044 Allur ferill málsins
Stjórnandi félags- og barnaverndarþjónustu kynnir sískráningu og þróun mála.