Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 162

7. febrúar 2023, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Inga Rún Beck Sigfúsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Þórhallur Árnason, varaformaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Eygerður Ósk Tómasdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 784 liður 14

    Fundargerð 162. fundar félagsmálanefndar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

  • Bæjarstjórn, fundur 347 liður 5

    Fundargerð 162. fundar félagsmálanefndar frá 7. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Til máls tók: Hjördis Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð 162. fundar félagsmálanefndar frá 7. febrúar er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Fundaáætlun félagsmálanefndar vor 2023

    Mál 2301154 Allur ferill málsins

    Nefndin samþykkti fundaáætlun félagsmálnefndar fyrir fyrri hluta árs 2023, með einni breytingu, ekki verður fundur 17. maí heldur þriðjudaginn 16. maí.

  2. 2. Fjárhagsyfirlit félagsmálanefndar 2022

    Mál 2302029 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri fjölskyldusviðs fór yfir fjárhagsyfirlit ársins 2022 í félagsþjónustu og barnavernd.

    Rekstrarniðurstaða félagsþjónustunnar í heild fór 2% yfir áætlun.

    Skýringar eru í meðfylgjandi minnisblaði.

  3. 3. Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu

    Mál 2301026 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar Fjarðabyggðar kynnir samning um sameiginlega barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem samþykktur var á fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar 2. febrúar 2023.

  4. 4. Fagteymi á fjölskyldusviði

    Mál 2302033 Allur ferill málsins

    Laufey þórðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar kynnir fagteymi innan stoð og stuðningsþjónustu. Fagteymi í málefnum fatlaðs fólks og fagteymi í málefnum

    eldra fólks. Markmið teymanna er að: Efla enn frekar faglegt starf í málaflokknum,

    marka stefnu með tilliti til bestu upplýsinga og þekkingar á hverjum tíma í samráði við nefndir og ráð og styðja við og styrkja starfsmenn og stjórnendur

  5. 5. Kynning nýrra félagslegra íbúða í Fjarðabyggð.

    Mál 2302031 Allur ferill málsins

    Laufey Þórðardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs kynnir fimm nýjar íbúðir í Fjarðabyggð í eigu Brákar sem Fjarðabyggð er boðið að nýta til félagslegrar úthlutunar. Farið var yfir fjölda fólks á biðlista.

  6. 6. Sérstakur húsnæðisstuðningur 2023

    Mál 2302044 Allur ferill málsins

    Breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir árið 2023. Eftirfarandi breytingar sem gerðar voru á eldri reglum. Tekin voru út tekju- og eignarviðmið í stað þess er vísað er í leiðbeiningar félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Tekju- og eignaviðmið verða birt undir flipanum gjaldskrá á heimasíðu Fjarðabyggðar.

    Félagsmálanefnd samþykkir breytingar fyrir sitt leyti.