Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 784

13. febrúar 2023, kl. 08:30 til 10:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 347 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs 783. og 784. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman utan liðar 9 í fundargerð 784.

    Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson

    Fundargerð bæjarráðs nr. 783 og 784. utan liðar 9 í fundargerð 784 er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Kaup á verkfræði- og arkitektaþjónustu 2018 - 2022

    Mál 2302055 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað fjármálastjóra með samantekt á kaupum Fjarðabyggðar á arkitekta- og verkfræðiþjónustu á árunum 2018 - 2022. Bæjarráð þakkar fyrir samantektina.

  2. 2. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt Breiðdalur

    Mál 1807140 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál gögn frá opnun tilboða í ljósleiðarkerfi Fjarðabyggðar í Breiðdal. Tilboð voru opnuð þann 10. febrúar 2023. Tvö tilboð bárust í ljósleiðarakerfið.Bæjarráð samþykkir að taka tilboði hæstbjóðanda þegar tilboðin hafa verið yfirfarin. Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu og undirrita skjöl þar um.

  3. 3. Erindi frá íbúum við Búðaveg 24

    Mál 2302054 Allur ferill málsins

    Erindi frá íbúum við Búðaveg 24 á Fáskrúðsfirði vegna hávðamengunar við húsið. Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Erindið var einnig sent á umhverfis- og skipulagsnefnd sem mun fjalla um málið á næsta fundi sínum. Bæjarráð mun bíða umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar.

  4. 4. Yfirlýsing sveitarfélags um að nýta ekki forkaupsrétt á skipi nr. 2793

    Mál 2302051 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um yfirlýsingu Fjarðabyggðar þess efnis að sveitarfélagið muni ekki nýta sér forkaupsrétt á skipinu Nönnu Ósk II SU 90. Bæjarráð samþykkir að nýta sér ekki forkaupsrétt að skipinu og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  5. 5. Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 13

    Mál 2302022 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðaumsókn Stefáns Rafns Stefánssonar um lóðina að Hlíðarbrekku 13 á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  6. 6. Umsókn um lóð Gilsholt 2

    Mál 2302009 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðaumsókn Bjarka Ingasonar um lóðina að Gilsholti 2 á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  7. 7. Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði

    Mál 2302016 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn ABC bygginga um breytingar á lóðinni að Búðareyri 29b. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að senda breytingar á lóðinni í grendarkynningu og vísar til staðfestingar í bæjarráði.

    Bæjarráð óskar eftir því við umhverfis- og skipulagsnefnd að málið fari til frekari úrvinnslu áður en það fer til grenndarkynningar og afgreiðslu.

  8. 8. Sérstakur húsnæðisstuðningur 2023

    Mál 2302044 Allur ferill málsins

    Breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir árið 2023. Eftirfarandi breytingar sem gerðar voru á eldri reglum. Tekin voru út tekju- og eignarviðmið í stað þess er vísað er í leiðbeiningar félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Tekju- og eignaviðmið verða birt undir flipanum gjaldskrá á heimasíðu Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir breytingarnar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  9. 9. Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja

    Mál 2111076 Allur ferill málsins

    Vísað til bæjarráðs frá íþrótta- og tómstundanefnd tillögu að breytingum að úthlutungarreglum íþrótta- og frístundastyrkja.

    Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu frá nefndinni áður en að málið verður afgreitt.

  10. 10. Stefnumörkun lögreglunnar á Austurlandi 2023

    Mál 2302047 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar stefnumörkun lögreglunar á Austurlandi fyrir árið 2023.

  11. 11. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Fundargerð 918. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.

  12. 12. Hafnarstjórn - 291

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 6. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

    1. 12.1 Hafnarstjórn erindi frá starfsmönnum2301162
    2. 12.2 Endurnýjun dráttarbáts - Undirbúningsvinna1911119
    3. 12.3 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    4. 12.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    5. 12.5 Endurnýjun hafnsögumannsskírteinis 20232302006
    6. 12.6 Aðalfundur Cruise Iceland 20232301226
    7. 12.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196
  13. 13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 113

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 113. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

    1. 13.1 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja
    2. 13.2 Afmælishald í íþróttahúsum og æskulýðsheimilum
    3. 13.3 Nýting frístundastyrks vegna sumarfrístundar
  14. 14. Félagsmálanefnd - 162

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 162. fundar félagsmálanefndar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

    1. 14.1 Fundaáætlun félagsmálanefndar vor 20232301154
    2. 14.2 Fjárhagsyfirlit félagsmálanefndar 20222302029
    3. 14.3 Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu2301026
    4. 14.4 Fagteymi á fjölskyldusviði2302033
    5. 14.5 Kynning nýrra félagslegra íbúða í Fjarðabyggð.2302031
    6. 14.6 Sérstakur húsnæðisstuðningur 20232302044
  15. 15. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 17

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 17. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

    1. 15.1 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
    2. 15.2 Naustahvammur 58 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302028
    3. 15.3 Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði2302013
    4. 15.4 Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 132302022
    5. 15.5 Umsókn um lóð Gilsholt 22302009
    6. 15.6 Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði2302016
    7. 15.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 17-192301191
    8. 15.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 102302034
    9. 15.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mýrargata 332301195
    10. 15.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásvegur 22301217
    11. 15.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 92301203
    12. 15.12 Ósk um umsögn, frístundabyggð við Eiða2301211
    13. 15.13 Ósk um umsögn, stækkun Skaganámu á Seyðisfirði2301185
    14. 15.14 Ósk um umsögn, stækkun hafnar á Seyðisfirði2301186
    15. 15.15 Göngustígur utan við fótboltavöll, Stöðvarfirði2302030
    16. 15.16 Niðurrif á gömlu fjósi2302039