Hafnarstjórn, fundur 291
6. febrúar 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, varamaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 784 liður 12
Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 6. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.
Bæjarstjórn, fundur 347 liður 4
Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 6. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls
Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 6. febrúar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Hafnarstjórn erindi frá starfsmönnum
Mál 2301162 Allur ferill málsins
Á 290. fundi hafnarstjórnar var lagt fram bréf frá starfsmönnum Fjarðabyggðarhafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs var falið að funda með starfsmönnum. Fundur var haldinn þriðjudaginn 31.janúar og er fundargerð þess fundar lögð hér fram sem trúnaðarmál. Hafnarstjórn fór yfir gögn málsins og felur hafnarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að kynna starfsmönnum niðurstöður hafnarstjórnar.
-
2. Endurnýjun dráttarbáts - Undirbúningsvinna
Mál 1911119 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá umboðsmanni Damen á Íslandi er varðar möguleika á endurnýjun dráttarbátsins Vattar. Hafnarstjórn þakkar Damen áhugann en hafnarstjórn ætlar að fara í þarfagreiningu fyrir slíka þjónustu hjá Fjarðabyggðarhöfnum og í kjölfarið af því verða málin skoðuð frekar.
-
3. Verkefni hafnarsjóðs
Mál 1908100 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs er varðar rekstur dráttarbátsins Vattar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
4. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að verksamningi fyrir dýpkun við nýju Frystihússbryggjuna á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir drög að verksamningi og felur hafnarstjóra undirritun hans.
-
5. Endurnýjun hafnsögumannsskírteinis 2023
Mál 2302006 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá Óla Hans Gestssyni um umsögn hafnarstjórnar vegna endurnýjunar hafnsögumannsskírteinis. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna umsögn og felur verkefnastjóra hafna að ganga frá henni.
-
6. Aðalfundur Cruise Iceland 2023
Mál 2301226 Allur ferill málsins
Boðað hefur verið til aðalfundar Cruise Iceland 2023 sem haldinn verður 2.maí á Sauðárkróki. Hafnarstjórn samþykkir að senda verkefnastjóra hafna og atvinnu- og þróunarstjóra að sækja fundinn.
-
7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Mál 2301196 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 449.fundar Hafnasambands Íslands