Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 292

20. febrúar 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, varamaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 786 liður 11

    Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 20. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.

  • Bæjarstjórn, fundur 348 liður 7

    Fundarðgerð 292. fundar hafnarstjórnar frá 23. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð 292. fundar hafnarstjórnar er samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Á 291. fundi hafnarstjórnar var lagt fram sem trúnaðarmál minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs er varðaði rekstur dráttarbátsins Vattar. Hafnarstjórn fól hafnarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju. Lagt fram sem trúnaðarmál að nýju. Hafnarstjórn samþykkir að fyrirkomulag á rekstri Vattar verði óbreytt að sinni.

  2. 2. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu verkefnisins og næstu skref.

  3. 3. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði

    Mál 2208102 Allur ferill málsins

    Lögð fram teikning af stækkun Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir að fela sviðsstjóra framkvæmdasviðs að hefja vinnu útboðsgagna og leggja fyrir að nýju.

  4. 4. Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður

    Mál 2012075 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu verkefnisins og næstu skref. Góður gangur er í uppbyggingu hússins og stefnt er á að framkvæmdum verði lokið í vor.

  5. 5. Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2103022 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað verkefnastjóra hafna, upplýsingafulltrúa og atvinnu- og þróunarstjóra varðandi markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn samþykkir að fara í uppsetningu á vef fyrir hafnirnar og felur verkefnastjóra í samstarfi við upplýsingafulltrúa að kanna með fleiri kosti í uppsetningu.

  6. 6. Dokk - Skipakerfi

    Mál 2302027 Allur ferill málsins

    Lögð fram kynning á Dokk-Skipakerfi ásamt tilboði í uppsetningu kerfisins fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn líst ágætlega á kerfið og skoðar það frekar þegar ný heimasíða hafnanna verður komin í loftið.

  7. 7. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju

    Mál 2302046 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar.

  8. 8. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2022

    Mál 2302050 Allur ferill málsins

    Drög að ársreikningi Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar