Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 786

27. febrúar 2023, kl. 08:30 til 13:05, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 348 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 785 og 786. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð bæjarráðs nr. 786 er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Skráning fasteigna í Fannardal

    Mál 2302153 Allur ferill málsins

    Fyrir þessum fundi liggja tölvupóstar frá Hákoni Björnssyni vegna skráningu fasteigna í Fannardal, ásamt minnisblaði fjármálastjóra með samantekt varðandi málið.

    Í minnisblaði fjármálastjóra sem liggur fyrir fundinum er málið rakið, allt frá því að það kom fyrst til árið 2006. Samkvæmt því sem þar kemur fram var landeiganda þá strax veitt bráðabirgðaleyfi fyrir umræddum sumarhúsum í landi Fannardals. Langvinnar deilur landeiganda við sveitarfélagið gerðu það síðan að verkum að vinna við deiliskipulag jarðarinnar dróst á langinn, og þar af leiðandi var ekki hægt að ljúka skráningu eigna á svæðinu fyrr en 2018, þegar deiliskipulag svæðisins var samþykkt. Jón Björn Hákonarson hafði enga aðkomu að þeim deilum, var ekki á neinum tímapunkti eigandi jarðarinnar og gat því lítið aðhafst til að ljúka skráningu á sínu húsi.

    Jón Björn Hákonarson hefur lýst yfir vilja sínum til að greiða fasteignagjöld af sumarhúsi sínu, afturvirkt. Samkvæmt lögum um álagningu og greiðslu fasteignagjalda ber eiganda fasteignar einungis að greiða fasteignagjöld frá og með skráningardegi eignar. Samkvæmt minnisblaði fjármálastjóra hefur það orðið að samkomulagi að Jón Björn muni greiða fasteignagjöld afturvirkt frá þeim tíma sem samþykkt deiliskipulag lá fyrir. Um er að ræða fasteignagjöld fyrir árin 2019, 2020, 2021 og 2022 samtals að upphæð 72.504 kr.sem er í samræmi við álagningu miðað við fasteignarmat útgefið af HMS.

  2. 2. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023

    Mál 2301137 Allur ferill málsins

    Atvinnu og þróunarstjóri kom á fundinn og kynnti þær umsóknir sem lagðar voru inn til Fiskeldissjóð fyrir starfsárið 2023. Bæjarráð þakkar atvinnu- og þróunarstjóra fyrir kynninguna og vinnu við umsóknir.

  3. 3. Tjaldsvæði 2022

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar viðauki við samning um rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Viðaukinn felur í sér að gildistími samningsins er styttur, og mun núverandi samningur renna út í október 2023 í stað apríl 2024. Bæjarstjóra falið að undirrita viðaukann.

  4. 4. Aðalskipulag breyting vegna skógræktar

    Mál 2301094 Allur ferill málsins

    Tillaga breytingum á skilmálum landflokksins "Landbúnaðarland" í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna stærðar á skógrækt unnið af Alta. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillöguna á vinnslustigi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að senda breytingu á Aðalskipulaginu til auglýsingar og vísar því til staðfestingar í bæjarstjórn

  5. 5. Umsókn um lóð Borgarnaust 5

    Mál 2302056 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðaumsókn Nípukolls ehf. vegna lóðarinnar að Borgnarnaust 5 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti. Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar.

  6. 6. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd Deiliskipulagi Skíðasvæðisins í Oddsskarði til samþykktar og svör við athugasemdum sem bárust á aulýsingatíma. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur svarað athugasemdum og samþykkt skipulagið fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir skipulagið og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. Opinber heimsókn forsetahjónanna til Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2210161 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála varðandi opinbera heimsókn forseta Íslands til Fjarðabyggðar. Staðfest er að heimsóknin fer fram dagana 13. - 15. apríl 2023. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu- og upplýsingamála og upplýsingafulltrúa að hafa yfirumsjón með undirbúningi heimsóknarinnar.

  8. 8. Almannavarnir 2023

    Mál 2302176 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar tilkynning frá almannavarnarnefnd frá 22. febrúar varðandi stöðu mála við Öskju.

  9. 9. Starfsmannamál

    Mál 2302184 Allur ferill málsins

    Fært til trúnaðarmálabókar.

  10. 10. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Fundargerð Samtaka Orkusveitarfélaga nr. 56 frá 17. febrúar lögð fram til kynningar.

  11. 10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 19

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 19. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.

    1. 10.1 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði1703117
    2. 10.2 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 132302063
    3. 10.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 62302110
    4. 10.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðargata 42302111
    5. 10.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 152302049
    6. 10.6 Umsókn um lóð Borgarnaust 52302056
    7. 10.7 Umsókn um lóð Blómsturvellir 312302057
    8. 10.8 Erindi frá íbúum við Búðaveg 242302054
    9. 10.9 Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði2302016
    10. 10.10 Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík2302098
    11. 10.11 Aðalskipulag br. skógrækt2301094
    12. 10.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 22302141
    13. 10.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 42302139
    14. 10.14 Vegna söfnunarstöðvar2302145
  12. 11. Hafnarstjórn - 292

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 20. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.

    1. 11.1 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    2. 11.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    3. 11.3 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
    4. 11.4 Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður2012075
    5. 11.5 Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna2103022
    6. 11.6 Dokk - Skipakerfi2302027
    7. 11.7 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju2302046
    8. 11.8 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20222302050