Bæjarráð, fundur 787
6. mars 2023, kl. 08:30 til 10:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 349 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfslok bæjarstjóra
Mál 2303026 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Jóns Björns Hákonarsonar þar sem hann segir upp starfi sínu sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar kjörtímabilið 2022 - 2026.
Bæjarráð samþykkir starfslok bæjarstjóra og felur formanni bæjarráðs ásamt bæjarritara að ganga frá uppgjöri starfsloka að loknum starfstíma. Jafnhliða sækir Jón Björn eftir leyfi sem bæjarfulltrúi í sex mánuði frá 1. apríl nk.
Auk þess verða þær breytingar að Birgir Jónsson tekur við sem forseti bæjarstjórnar af Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttir á næsta fundi bæjarstjórnar.
-
2. Þróun hafnarsvæða
Mál 2108027 Allur ferill málsins
Tekin umfjöllun um atvinnumál. Tekið fyrir sem trúnaðarmál. Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
-
3. Sala á Búðarvegi 8 - Templarinn
Mál 2002096 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt fjármálastjóra á þremur tilboðum í Búðarveg 8 á Fáskrúðsfirði eða Templarann. Eignin var auglýst til sölu í samræmi við samþykkt bæjarráðs frá 3. október 2022.
-
4. Tilboð í Búðarveg 8 Templarann - Tinna og Sindri
Mál 2303014 Allur ferill málsins
Lagt fram kauptilboð Tinnu Hrannar og Sindra Má Smárabörnum í Búðarveg 8 á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð hefur ákveðið að taka öðru tilboði.
-
5. Tilboð í Búðarveg 8 Templarann - Krzyszof Edmund ofl
Mál 2303013 Allur ferill málsins
Lagt fram kauptilboð Kryxysztof Edmund Madejski ofl. f.h. óstofnaðs félags í Búðarveg 8 á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu og felur fjármálastjóra frágang málsins og bæjarstjóra undirritun skjala sem það varða.
-
6. Tilboð í Búðarveg 8 Templarann - Reisugil ehf.
Mál 2303012 Allur ferill málsins
Lagt fram kauptilboð Reisugils ehf. (Guðrúnar Æsu Ingólfsdóttur) í Búðarveg 8 á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð hefur ákveðið að taka öðru tilboði.
-
7. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 919. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.
-
8. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
Mál 2302093 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 57. lögð fram til kynningar