Bæjarráð, fundur 785
20. febrúar 2023, kl. 08:30 til 10:40, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 348 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 785 og 786. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir
Fundargerð bæjarráðs nr. 785 er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að breytingum á Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar. Mannvirkja- og veitunefnd og umhverfis- og skipulagsnefnd hafa samþykkt framlagðar tillögur fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykktir framlagðar tillögur að breytingum á Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar.
-
2. Kynning frá Sparisjóði Austurlands
Mál 2302119 Allur ferill málsins
Umræða um málefni Sparisjóðs Austurlands.
-
3. Viljayfirlýsing við AHA Bygg
Mál 2302120 Allur ferill málsins
Framlögð sem trúnaðarmál drög að viljayfirlýsingu við byggingarfélagið AHA Bygg. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og felur forstöðumanni stjórnsýslu- og upplýsingamála að ganga frá málinu og bæjarstjóra undirritun hennar.
-
4. Íbúakönnun 2022
Mál 2211014 Allur ferill málsins
Framlagðar niðurstöður íbúakönnunar sem framkvæmda var í desember 2022 ásamt minnisblaði forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála. Bæjarráð telur að könnunin leiði í ljós ýmis tækifæri til úrbóta í þjónustu sveitarfélagsins. Bæjarráð mun taka könnunina til frekar úrvinnslu á næstunni og felur forstöðumanni stjórnsýslu- og upplýsingamála að vinna málið áfram.
-
5. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023
Mál 2302095 Allur ferill málsins
HMS hefur kynnt að á næstu vikum verður auglýst eftir umsóknum í fyrstu úthlutun fyrir árið 2023 um stofnframlaglög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020. Einnig framlagðar til kynningar samþykkt húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023 og reglur um stofnframlög til almennra íbúða.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um stofnframlög þegar þar að kemur í samvinnu við Brák og málið verði lagt fyrir bæjarráð að nýju.
-
6. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
Mál 2302093 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 55 lögð fram til kynningar
-
7. Fræðslunefnd - 121
Fundargerð fræðslunefndar frá 15. febrúar lögð fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
- 7.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-20232210162
- 7.2 Skóladagatöl 2023-20242301073
- 7.3 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
- 7.4 Skólamáltíðir grunnskóla2210173
-
8. Mannvirkja- og veitunefnd - 11
Fundargerð 11. fundar frá 17. febrúar Mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
- 8.1 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
-
9. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 18
Fundargerð 17. fundar umhvefis- og skipulagsnefndar frá 17. febrúar lögð fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
- 9.1 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021