NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 18
17. febrúar 2023, kl. 12:00 til 13:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, varamaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 785 liður 9
Fundargerð 17. fundar umhvefis- og skipulagsnefndar frá 17. febrúar lögð fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
Bæjarstjórn, fundur 348 liður 3
Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 18. og nr. 19 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók: Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Fundarðgerði 18. og 19. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar eru samþykktar með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Lagðar fram tillögur að breytingum á Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar. umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur sem meðal annars fjallar um að setja upp grenndarstöðvar í öllum byggðarkjörnum og samhliða því að breyta opnunartíma á móttökustöðvunum í öllum byggðarkjörnum. Innleiðing klippikorta tekur gildi 1. júní 2023 á móttökustöðvum. Framlagðar breytingar eru í samræmi við þær lagabreytingar er tóku gildi 1. janúar 2023.