NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 19
21. febrúar 2023, kl. 08:15 til 10:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, varamaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Mál 1703117 Allur ferill málsins
Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði til samþykktar og svör við athugasemdum sem bárust á aulýsingatíma. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur svarað athugasemdum og vísar deiliskipulaginu til samþykktar í bæjarstjórn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda skipulagið til skipulagsstofnunar og í auglýsingu í B tíðindum eftir samþykki bæjarstjórnar.
-
2. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 13
Mál 2302063 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Starmýri 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
3. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 6
Mál 2302110 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Búðareyri 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðargata 4
Mál 2302111 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Búðatrgötu 4, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 15
Mál 2302049 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Bleiksárhlíð 15, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
6. Umsókn um lóð Borgarnaust 5
Mál 2302056 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð að Borgarnaust 5, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
7. Umsókn um lóð Blómsturvellir 31
Mál 2302057 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð að Blómsturvöllum 31, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að hefja vinnu við grenndarkynningu.
-
8. Erindi frá íbúum við Búðaveg 24
Mál 2302054 Allur ferill málsins
Erindi frá íbúum við Búðaveg 34 á Fáskrúðsfirði vegna hávaðamengunar við húsið. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum á að forsendur byggingarleyfis séu brostnar. Fyrir liggur úrbótaáætlun sem gerð var af Eflu að beiðni Loðnuvinnslunar, umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til Loðnuvinnslunar að hefja umsóknarferli fyrir úrbætur strax.
Viðbótarbókun Heimis Snæs Gylfasonar og Ingunnar Eir Andrésdóttir, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Jóhönnu Guðnýar Halldórsdóttir, fulltrúa Fjarðalistans: gerð er alvarleg athugasemd við seinagang HAUST á málinu og samkiptaleysi við umhverfis- og skipulagsnefnd og óskað er eftir betri samskiptum hér eftir í alvarlegum málum sem þessum.
-
9. Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði
Mál 2302016 Allur ferill málsins
Vísað frá Bæjarráði til nefndarinnar umsókn ABC bygginga um breytingar á lóðinni að Búðareyri 29 b.
Bæjarráð óskar eftir því við umhverfis- og skipulagsnefnd að málið fari til frekari úrvinnslu áður en það fer til grenndarkynningar og afgreiðslu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera samning er varðar stöðuleyfi til þriggja ára möguleika á endurnýjun fyrir starfsmannabústað við Búðareyri 29b.
-
10. Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík
Mál 2302098 Allur ferill málsins
Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að skv. almennum skilmálum fyrir landflokkinn íbúðabyggð í aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 er tekið fram:
"Á íbúðarsvæðum er ekki gert ráð fyrir nýjum leyfum fyrir gistingu í flokki II, III og IV skv. rg. 1277/2016".
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að skrifa umsögn þess efnis.
-
11. Aðalskipulag br. skógrækt
Mál 2301094 Allur ferill málsins
Aðalskipulag Fjarðabyggðar. Breyting á skilmálum landflokksins Landbúnaðarland vegna stærðar á skógrækt. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillöguna á vinnslustigi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.
-
12. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 2
Mál 2302141 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Grímseyri 2, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
13. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 4
Mál 2302139 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Grímseyri 4, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
14. Vegna söfnunarstöðvar
Mál 2302145 Allur ferill málsins
Erindi frá Íbúasamtökum Fáskrúðsfirðinga vegna söfnunarstöðvar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindið og vísar í niðurstöður 18. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar.