NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 20
7. mars 2023, kl. 08:15 til 10:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 788 liður 17
Fundargerð 20. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. mars lögð fram til afdgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 349 liður 6
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
2. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Loðnuvinnslan hf. hefur lagt inn umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Sólvellir 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2303004 Allur ferill málsins
Víkin fagra ehf. hefur lagt inn umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 19
Mál 2302182 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Bleiksárhlíð 19, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
5. Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður
Mál 2302212 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 8, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að stækka lóðina og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugata 3
Mál 2302200 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Brekkugötu 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðagata 32
Mál 2302155 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hlíðagötu 32, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59a
Mál 2302175 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Austurveg 59a, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59b
Mál 2302172 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Austurveg 59a, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fá frekari skýringar á lóðamörkum.
-
10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 47
Mál 2302148 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Blómsturvelli 47, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Þórhólsgata 6
Mál 2302166 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Þórhólsgötu 6, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
12. Reglur um lóðarúthlutanir
Mál 2302135 Allur ferill málsins
Reglur um lóðarúthlutanir til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra reglur og leggja fyrir fund að nýju. Jafnframt að kanna reglur er varðar úthlutanir á iðnaðarlóðum.
-
13. Refa- og minkaveiði 2021-2022
Mál 2201007 Allur ferill málsins
Samantekt um refa- og minkaveiði 2021-2022. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur formanni umhverfis- og skipulagsnefndar að funda með samningsbundnum refa- og minnkaskyttum í Fjarðabyggð.
-
14. Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins
Mál 2302037 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um ágang búfjár. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
-
15. Deiliskipulag Fagridalur - Eskifirði - íbúðasvæði
Mál 2303020 Allur ferill málsins
Forhönnun fyrir nýtt deiliskipulag Fagradal - Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar vinnu við nýtt deiliskipulag á Eskifirði og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
-
16. Tjaldsvæði á Stöðvarfirði
Mál 2303028 Allur ferill málsins
Erindi frá íbúa er varðar staðsetningu á tjaldsvæði á Stöðvarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindið og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara erindinu.
-
16. Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST
Mál 2212134 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju drög að sameiginlegri samþykkt fyrir sveitarfélög á starfssvæði HAUST sem komi í stað sérstakra samþykkta um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að sameiginlegri samþykkt sem gildi fyrir starfssvæði HAUST og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.
-
17. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Mál 2302213 Allur ferill málsins
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar til kynningar frestað fram að næsta fundi.