Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 21

21. mars 2023, kl. 08:15 til 10:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 790 liður 21

    Fundargerð 21. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. mars tekin til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 350 liður 8

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Strandgata 77B - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2303211 Allur ferill málsins

    Strandgata 77b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  2. 2. Nesbakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2303162 Allur ferill málsins

    Nesbakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi vegna viðbyggingar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum og undirskriftum íbúa í húsinu hefur verið skilað.

  3. 3. Miðstræti 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2303159 Allur ferill málsins

    Miðstræti 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59b

    Mál 2302172 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Austurveg 59b, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  5. 5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 10 Fáskrúðsfirði

    Mál 2303204 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hlíðargötu 10, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  6. 6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mánagata 9

    Mál 2303169 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Mánagötu 9, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  7. 7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Nesgata 7 og 7A

    Mál 2303061 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Nesgötu 7 og 7A, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  8. 8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásgerði 3

    Mál 2303212 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Ásgerði 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  9. 9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólabrekka 5

    Mál 2303073 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Skólabrekku 5, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  10. 10. Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður

    Mál 2302212 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 8, Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti stækkun lóðar en vísar erindinu til umhverfis skipulagsnefndar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulegar breytingar á deiliskipulagi og vísar erindinu í Bæjarráð.

  11. 11. Umsókn um lóð Ystidalur 5

    Mál 2303168 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Ystadal 5, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  12. 12. Umsókn um lóð Ystidalur 7

    Mál 2303167 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir parhús að Ystadal 7, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  13. 13. Umsókn um lóð Ystidalur 9

    Mál 2303166 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir parhús að Ystadal 9, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  14. 14. Umsókn um lóð Garðaholt 5

    Mál 2303165 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir raðhús að Garðaholti 5, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Umhverfis- og skipulagsnefnd vekur athygli á því að í skilmálum deiliskipulags er gert ráð fyrir tveim hæðum.

  15. 15. Umsókn um lóð Suðurtún 5

    Mál 2303210 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir spennistöð að Suðurtúni 5, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  16. 16. Lausar lóðir í Fjarðabyggð

    Mál 2301128 Allur ferill málsins

    Afsláttur vegna lausra lóða í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur tekið þá ákvörðum að hafa 75% afslátt af gatnagerðargjöldum á íbúðarhúsalóðum út árið 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd vill með þessu koma til móts við verðlagsbreytingar og hækkanir á aðföngum og hvetur einstaklinga til frekari uppbyggingar.

  17. 17. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í uppbyggingu á landgræðsluskógum á Reyðarfirði og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að halda áfram viðræðum við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar.

  18. 18. Strandgata 9b - matjurtagarður

    Mál 2303143 Allur ferill málsins

    Ósk íbúa Strandgötu 9b, Eskifirði um leyfi fyrir matjurtagarði. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í hugmyndir um matjurtagarð á þessu svæði og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur ekki umboð fyrir styrkveitingum.

  19. 19. Ábending vegna deiliskipulags neðan Búðavegar Fáskrúðsfirði

    Mál 2303126 Allur ferill málsins

    Ábending íbúa vegna deiliskipulags neðan Búðavegar Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar ábendinguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara erindinu.

  20. 20. Vöktun flóru og fánu í Fólkvöngum Fjarðabyggðar 2022-2025 Áfangaskýrsla 2022

    Mál 2303063 Allur ferill málsins

    Skýrsla Náttúrustofu Austurlands: Vöktun flóru og fánu í Fólkvöngum Fjarðabyggðar 2022-2025: Áfangaskýrsla 2022. Náttúrustofa óskar eftir að birta skýrslu á vef sínum. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakka kynninguna og veitir Náttúrustofu heimild til að birta skýrsluna.

  21. 21. Deiliskipulag Fagridalur - Eskifirði - íbúðasvæði

    Mál 2303020 Allur ferill málsins

    Deiliskipulag Fagridalur, Eskifirði. Tillaga 1 og 2 kynntar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu 1 og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að boða til íbúafundar.

  22. 22. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lambeyrarbraut 3

    Mál 2303215 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Lambeyrarbraut 3, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  23. 23. Stækkun lóða við Hjallaleiru

    Mál 2303218 Allur ferill málsins

    Ósk um óverulega breytingu á deiliskipulagi og stækkun lóða við Hjallaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarráð. Umhverfis- og skipulagsnefnd setur þá kröfu að gerð verði mön innan lóðamarka til austurs innan árs.