Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 790

27. mars 2023, kl. 13:00 til 15:50, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 350 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022

    Mál 2212099 Allur ferill málsins

    Framhald frá síðasta fundi bæjarráðs.

    Endurskoðandi Magnús Jónsson frá KPMG fór yfir stöðu á vinnslu ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2022.

    Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 29. mars nk.

  2. 2. Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - í samráðsgátt

    Mál 2303120 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju fyrirhugaðar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélag. Umsagnarfrestur er framlengdur til 30. mars nk.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að skila umsögn um fyrirhugaðar breytingar

  3. 3. Tillaga kjörnefndar að fulltrúa í stjórn sambandsins

    Mál 2303271 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar tillaga kjörnefndar að fulltrúa í stjórn sambandsins.

  4. 4. Reglur um leikskóla

    Mál 2110048 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingu á reglum um leikskóla.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  5. 5. Gjaldskrá leikskóla 2023

    Mál 2209161 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingu á gjaldskrám leikskóla í samræmi við breytingar sem lagðar hafa verið fram um breytingar á reglum um leikskóla.

    Bæjarráð staðfestir breytingar sem lagðar eru til á gjaldskrá og þær taki gildi frá og með 1. apríl 2023.

  6. 6. Leiga á snjótroðara

    Mál 2303243 Allur ferill málsins

    Fram lögð drög að samningi um leigu á snjótroðara frá Skíðasvæði Höfuðborgarsvæðisins sem nýttur verður á skíðasvæðinu í Oddskarði vegna bilunar í snjótroðara í Oddskarði.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans ef til þess kemur að þörf sé á honum. Kostnaði mætt innan málaflokks íþrótta- og tómstundamála.

  7. 7. Saga Norðfjarðar frá 1929 - 1998

    Mál 2303266 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Samvinnufélagi útgerðarmanna á Norðfirði þar sem samvinnufélagið lýsir yfir að það greiði kostnað við þann hluta söguritunar Norðfjarðarsögu sem er frá 1929 til 1998. Óskað er eftir að sveitarfélagið greiði útgáfu verksins þegar ritun er lokið.

    Bæjarráð fagnar áhuga Samvinnufélagsins og þakkar áhuga á ritun sögu Norðfjarðar. Erindi vísað til umfjöllunar stjórnar Menningarstofu og Safnastofnunar.

  8. 8. Umsögn um tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu Suðurfjarðarvegar, 230. máls

    Mál 2303246 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga til þingsályktunar um uppbyggingu Suðurfjarðarvegar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar, 230. mál. Frestur til umsagnar er til 29. mars nk.

    Bæjarráð tekur heilshugar undir þingsályktunina og vísar til fyrri umsagna og ályktana sveitarfélagsins um mikilvægi uppbyggingar Suðurfjarðarvegar. Bæjarritara falið að skila umsögn.

  9. 9. Fjórðungsmót hestamanna 2023 - beiðni um styrk

    Mál 2303228 Allur ferill málsins

    Framlögð styrkumsókn frá Hestamannafélaginu Freyfaxa vegna fjórðungsmóts hestamanna sem haldið verður 6. - 9. júlí 2023.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja viðburðinn og felur forstöðumanni stjórnsýslu og upplýsingamála að afgreiða styrk.

  10. 10. Umsókn um lóð Suðurtún 5

    Mál 2303210 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn RARIK um lóðina að Suðurtúni 5 á Reyðarfirði undir spennistöð.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  11. 11. Umsókn um lóð Ystidalur 5

    Mál 2303168 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Búðinga ehf. um lóðina að Ystadal 5 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  12. 12. Umsókn um lóð Ystidalur 7

    Mál 2303167 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Búðinga ehf. um lóðina að Ystadal 7 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  13. 13. Umsókn um lóð Ystidalur 9

    Mál 2303166 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Búðinga ehf. um lóðina að Ystadal 9 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  14. 14. Umsókn um lóð Garðaholt 5

    Mál 2303165 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Búðinga ehf. um lóðina að Garðaholti 5 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  15. 15. Stækkun lóða við Hjallaleiru

    Mál 2303218 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Nes 1 og stækkun lóða við Hjallaleiru 13, 15, 17 og 19 .

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að stækkun lóða ásamt tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulagsins Nes 1 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  16. 16. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 920. fundar stjórnar sambandsins.

  17. 17. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 58. fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

  18. 18. Mannvirkja- og veitunefnd - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 12. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 22. mars tekin til afgreiðslu.

    1. 18.1 Fiskeldissjóður - umsóknir 20232301137
    2. 18.2 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    3. 18.3 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    4. 18.4 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    5. 18.5 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
  19. 19. Fræðslunefnd - 123

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 123. fundar fræðslunefndar frá 22. mars tekin til afgreiðslu.

    1. 19.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-20232210162
    2. 19.2 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
    3. 19.3 Reglur um leikskóla2110048
    4. 19.4 Gjaldskrá leikskóla 20232209161
  20. 20. Hafnarstjórn - 293

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 293. fundar hafnarstjórnar frá 20. mars tekin til afgreiðslu.

    1. 20.1 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss2206006
    2. 20.2 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
    3. 20.3 Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna2103022
    4. 20.4 Umsögn vegna endurnýjunar hafnsöguréttinda2303129
    5. 20.5 Umsókn um styrk vegna Franskra daga 20232302159
    6. 20.6 Umsókn um styrk til bæjarhátíðina Støð í Stöð 20232301108
    7. 20.7 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    8. 20.8 Vinnustofa Hafið tekur ekki lengur við2211088
    9. 20.9 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196
  21. 21. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 21. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. mars tekin til afgreiðslu.

    1. 21.1 Strandgata 77B - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2303211
    2. 21.2 Nesbakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2303162
    3. 21.3 Miðstræti 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2303159
    4. 21.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59b2302172
    5. 21.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 10 Fáskrúðsfirði2303204
    6. 21.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mánagata 92303169
    7. 21.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Nesgata 7 og 7A2303061
    8. 21.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásgerði 32303212
    9. 21.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólabrekka 52303073
    10. 21.10 Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður2302212
    11. 21.11 Umsókn um lóð Ystidalur 52303168
    12. 21.12 Umsókn um lóð Ystidalur 72303167
    13. 21.13 Umsókn um lóð Ystidalur 92303166
    14. 21.14 Umsókn um lóð Garðaholt 52303165
    15. 21.15 Umsókn um lóð Suðurtún 52303210
    16. 21.16 Lausar lóðir í Fjarðabyggð2301128
    17. 21.17 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    18. 21.18 Strandgata 9b - matjurtagarður2303143
    19. 21.19 Ábending vegna deiliskipulags neðan Búðavegar Fáskrúðsfirði2303126
    20. 21.20 Vöktun flóru og fánu í Fólkvöngum Fjarðabyggðar 2022-2025 Áfangaskýrsla 20222303063
    21. 21.21 Deiliskipulag Fagridalur - Eskifirði - íbúðasvæði2303020
    22. 21.22 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lambeyrarbraut 32303215
    23. 21.23 Stækkun lóða við Hjallaleiru2303218