Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 789

20. mars 2023, kl. 09:30 til 12:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 350 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 20. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022

    Mál 2212099 Allur ferill málsins

    Kynnt drög að ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2022. Endurskoðendur

    Fjarðabyggðar sátu fundinn í fjarfundi og gerðu grein fyrir vinnu sinni.

    Ársreikningur verður tekin til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur Fjarðabyggðar í janúar auk skatttekna og launakostnaðar í janúar - febrúar 2023.

  3. 3. Vinnustaðagreining 2022

    Mál 2303164 Allur ferill málsins

    Framlagðar niðurstöður vinnustaðagreiningar sem Gallup framkvæmdi í lok árs 2022 sem trúnaðarmál.

  4. 4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að kostnaðaráætlun vegna uppbyggingar bragga á safnasvæði Íslenska Stríðsárasafnsins.

    Vísað til stjórnar menningar- og safnastofnunar.

  5. 5. Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð Brák, Fjarðabyggð og Búðingar 2023

    Mál 2303171 Allur ferill málsins

    Framlögð samstarfsyfirlýsing Fjarðabyggðar við Brák íbúaðfélag og Búðinga um uppbyggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir samstarfsyfirlýsinguna.

  6. 6. Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - í samráðsgátt

    Mál 2303120 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar úr samráðsgátt fyrirhugaðar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélag. Umsagnarfrestur er til 27. mars nk.

  7. 7. Erindi frá UMF Leikni mars 2023

    Mál 2303118 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Ungmennafélaginu Leikni varðandi aðstöðu fyrir rafíþróttadeild á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá framkvæmdasviði vegna stöðu húsnæðis og óskar afstöðu Hollvinasamtaka Skrúðs. Erindið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  8. 8. Aðalfundur Netorku hf 2023 - starfsárið 2022

    Mál 2303142 Allur ferill málsins

    Lagt fram aðalfundarboð Netorku 28. mars 2023.

    Bæjarráð felur Sigfúsi Þóri Guðlaugssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  9. 9. Fundur bæjarráðs með Afli starfsgreinafélagi

    Mál 2303119 Allur ferill málsins

    Fjarfundur með formanni Afls starfsgreinafélags vegna íbúðauppbyggingar í Fjarðabyggð og Bjargs íbúðafélags.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að ræða nánar við formann Afls starfsgreinafélags um hugmyndir félagsins um uppbyggingu húsnæðis í samvinnu við Bjarg húsnæðisfélag og leggja fyrir bæjarráð að nýju.