Fræðslunefnd, fundur 123
22. mars 2023, kl. 16:30 til 18:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Birta Sæmundsdóttir, varamaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 790 liður 19
Fundargerð 123. fundar fræðslunefndar frá 22. mars tekin til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 350 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 22. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023
Mál 2210162 Allur ferill málsins
Skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla gerði grein fyrir skólanámskrá skólans og starfsáætlun og svaraði spurningum fundarfólks. Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu og skýr svör.
-
2. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð
Mál 2302067 Allur ferill málsins
Til umræðu voru hugmyndir um breytingar á reglum um kennslutímaúthlutun til grunnskóla. Næsta skref er að funda með deildarstjórum sérkennslu í grunnskólunum. Fundarfólk var sammála um að vanda til verka. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
3. Reglur um leikskóla
Mál 2110048 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem sett er fram hugmynd að breytingu á reglum um leikskóla. Breytingin gengur út á að foreldrar barna geti sótt um niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og áramóta, í dymbilviku og í vetrarfríi grunnskóla. Vonast er til að breytingin virki sem hvati fyrir foreldra til að gefa börnum frí þessa daga, sem auðveldar leikskólunum að verða við óskum starfsfólks um leyfi, en þeim óskum hefur fjölgað með möguleikanum á uppsöfnun á styttingu vinnuvikunnar. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður aukist við þessa breytingu. Fræðslunefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs.
-
4. Gjaldskrá leikskóla 2023
Mál 2209161 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem sett er fram hugmynd að breytingu á gjaldskrá leikskóla árið 2023. Breytingin gengur út á að foreldrar barna geti sótt um niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og áramóta, í dymbilviku og í vetrarfríi grunnskóla. Vonast er til að breytingin virki sem hvati fyrir foreldra til að gefa börnum frí þessa daga, sem auðveldar leikskólunum að verða við óskum starfsfólks um leyfi, en þeim óskum hefur fjölgað með möguleikanum á uppsöfnun á styttingu vinnuvikunnar. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður aukist við þessa breytingu. Fræðslunefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs.