Fræðslunefnd, fundur 124
19. apríl 2023, kl. 16:30 til 18:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Birta Sæmundsdóttir, varamaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 796 liður 28
Fundargerð fræðslunefndar frá 19. apríl lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 352 liður 4
Til máls tók Birgir Jónsson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 19. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kennslutímamagn grunnskóla 2023-2024
Mál 2304102 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra um úthlutun tímamagns til grunnskóla skólaárið 2023-2024. Farið var yfir tillögu að úthlutun. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
-
2. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð
Mál 2302067 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri sagði frá fundi með stjórnendum sérkennslu og stuðnings í grunnskólum Fjarðabyggðar ásamt stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð og formaður fræðslunefndar gerði grein fyrir fundi á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var miðvikudaginn 19. apríl í húsnæði Menntaskólans á Egilsstöðum. Öll erum sammála um að vanda vinnu við gerð nýrra reglna. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
3. Niðurstöður úr Skólavoginni
Mál 1311034 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri fór yfir rekstarniðurstöður leikskóla fyrir árið 2021. Lagt fram til kynningar.
-
4. Hinsegin fræðsla í grunnskólum Fjarðabyggðar
Mál 2304063 Allur ferill málsins
Borist hefur erindi frá samtökunum 22 til fræðslunefndar er varðar hinsegin fræðslu í skólum Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra og upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar að svara erindinu.