Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 125

17. maí 2023, kl. 16:30 til 18:45, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 800 liður 21

    Fundargerð 125. fundar fræðslunefndar frá 17. maí lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 354 liður 8

    Fundargerð 125. fundar fræðslunefndar frá 17. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Jóhanna Sigfúsdóttir og Birgir Jónsson,

    Fundargerð 125. fundar fræðslunefndar er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu - rannsókn

    Mál 2301074 Allur ferill málsins

    Fulltrúar úr stjórn verkefnisins Hinsegin lífsgæði í grunnskólum í Fjarðabyggð kynntu efnivið frá fundi þeirra 19. apríl með tengiliðum, stjórnendum í grunnskólum Fjarðabyggðar og fulltrúa fjölskyldusviðs og sögðu frá fyrstu niðurstöðum úr rannsókn á stöðu hinsegin nemenda í grunnskólum í Fjarðabyggð sem framkvæmd var í mars 2023. Fræðslunefnd þakkar fyrir kynninguna.

  2. 2. Haustþing Kennarasamband Austurlands KSA

    Mál 2304241 Allur ferill málsins

    Til umræðu var bréf frá stjórn Kennarasambands Austurlands varðandi Haustþing KSA. Bréfinu var vísað frá bæjarráði til fræðslunefndar. Í bréfinu er óskað eftir stuðningi sveitarfélagsins við Haustþing KSA. Fræðslunefnd mun áfram styrkja Haustþing KSA með því að útvega aðstöðu til fundarhalda og styðja við grunnskólana svo þeir geti sótt þingið og greitt fyrir þá endurmenntun sem þar er í boði.

  3. 3. Ungmennaráð 2022

    Mál 2203101 Allur ferill málsins

    Erindi ungmennaráðs um stöðupróf í sundi fyrir 7. til 10. bekk var tekið til umfjöllunar, en erindinu var vísað frá bæjarstjórn til fræðslunefndar. Í minnisblaði frá ungmennaráði er lagt til að stöðupróf verði tekið upp í sundi fyrir 7. til 10. bekk og þeir nemendur sem nái hæfniviðmiði fái að stunda annars konar heilsurækt, t.a.m. í líkamsræktarsal. Fræðslunefnd þakkar ungmennaráðinu fyrir erindið og tekur það til frekari skoðunar, m.a. með því að óska eftir umsögn íþróttakennara og skólastjóra grunnskólanna. Málinu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

  4. 4. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð

    Mál 2302067 Allur ferill málsins

    Kynnt var eyðublað sem grunnskólar Fjarðabyggðar eru beðnir um að vinna fyrir fund um úthlutun og ráðstöfun fjármuna í grunnskóla með fulltrúum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í Fjarðabyggð sem haldinn verður 24. maí.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024

    Mál 2305048 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir verkferlum við gerð fjárhagsáætlunar. Þá liggur fyrir minnisblað fræðslustjóra þar sem fram eru settar hugsanlegar breytingar á starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum milli áranna 2023 til 2024. Frekari umræðu er frestað til næsta fundar fræðslunefndar. Formaður fræðslunefndar lagði fram tillögu um að nefndin hefði aukafund 31. maí. Samþykkt samhljóða.

  6. 6. Niðurstöður úr Skólavoginni

    Mál 1311034 Allur ferill málsins

    Farið var yfir niðurstöður úr skólavoginni, niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir nemendur í 6.-10. bekk grunnskólanna í Fjarðabyggð, annars vegar í október og hins vegar í apríl. Niðurstöðurnar nýtast sem innra mat í grunnskólum Fjarðabyggðar og helstu niðurstöður eru birtar á heimasíðum skólanna og/eða í innra mats skýrslum skólanna. Niðurstöður eru kynntar nemendum og starfsfólki skóla sem og skólaráði. Niðurstöðurnar nýtast skólunum til úrbóta á skólastarfi. Lagt fram til kynningar.