Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 800

22. maí 2023, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Haraldur L Haraldsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 354 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 799 og 800 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Elís Pétur Elísson, Arndís Bára Pétursdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og Birgir Jónsson.

    Fundargerð 800. fundar bæjarráðs er samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 2

    Mál 2305152 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023 vegna fjármögnunar með lántöku.

    Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 2 fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Fyrirspurn um húsnæðisuppbyggingu á Stöðvarfirði.

    Mál 2305140 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Íbúasamtökum Stöðvarfjarðar og Sterks Stöðvarfjarðar varðandi húsnæðismál á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til fjármálastjóra. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  3. 3. Reglur um lóðarúthlutanir

    Mál 2302135 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs drög að nýjum reglum um lóðarúthlutanir.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar.

  4. 4. Drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna fyrir flugvelli

    Mál 2305149 Allur ferill málsins

    Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 100/2023 - "Drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna fyrir flugvelli".

    Bæjarráð felur bæjarritara að móta umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  5. 5. Kirkjuból í Norðfjarðarsveit - ábúð

    Mál 2301049 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um framtíð ábúðar á jörðinni Kirkjubóli í Norðfjarðarsveit.

    Bæjarráð felur bæjarritara að ræða við málsaðila.

  6. 6. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023

    Mál 2301137 Allur ferill málsins

    Framlögð niðurstaða úthlutunar úr Fiskeldisjóði fyrir árið 2023.

    Úthlutun styrkja úr Fiskeldissjóð 2023 undirstrikar enn og aftur mikilvægi þess að innheimta af gjöldum sem verða til af fiskeldi í sjó renni beint til sveitarfélagana sem hana hýsa svo hægt sé að nýta þá í viðeigandi innviðauppbyggingu. Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum sínum að áfram sé lagt upp með starfsemi fiskeldissjóðs og ítrekar þá skoðun sína að leggja ætti niður sjóðinn.

  7. 7. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil

    Mál 2303368 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd drögum að skipulags- og matslýsingu fyrir deiliskipulag vegna ofanflóða varna Nes- og Bakkagilja.

    Bæjarráð samþykkir skipulags- og matslýsingu fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

  8. 8. Umsókn um lóð Lyngbakki 2

    Mál 2305079 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðarumsókns Nestaks ehf. um lóðina Lyngbakka 2. Nefndin hefur samþykkt úthlutunina með fyrirvara um breytingu á byggingarreit og aðkomu að húsinu.

    Bæjarráð samþykkir úthlutunina fyrir sitt leyti.

  9. 9. Umsókn um lóð Ægisgata 5

    Mál 2305108 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðarumsókn ABC byggingar ehf. um lóðina Ægisgötu 5 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun á lóðinni.

  10. 10. Rafrænt aðgengi íþróttamiðstöðva utan opnunartíma

    Mál 2305103 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd tillögu um kaup á rafrænni aðgangasstýringu fyrir líkamsræktir Fjarðabyggðar og beiðni um viðbótarfjármagn að fjárhæð 1,1 m.kr.

    Bæjarráð samþykkir að veita af liðnum óráðstafað 21690 fjármagn til kaupa á aðgangsstýringu.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Ragnar Sigurðsson situr hjá við afgreiðslu málsins.

  11. 11. Breytingar á reglugerð um náttúruhamfaratryggingu Íslands

    Mál 2305138 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að breytingum á reglugerð um Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

    Bæjarráð felur bæjarritara að fara yfir málið og skila inn umsögn ef þarf.

  12. 12. Prófun almannavarnarboða

    Mál 2305151 Allur ferill málsins

    Lögreglustjórinn á Austurlandi og Neyðarlínan í samstarfi vð Fjarðabyggð og Almannavarnir gera prófanir á boðunarkerfi á Norðfirði 24. maí til að bæta boðun rýminga. Fram lagt og kynnt.

  13. 13. Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um vindorkuskýrsluna

    Mál 2305139 Allur ferill málsins

    Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um skýrsluna "Vindorka - valkostir og greining" lögð fram til kynningar.

  14. 14. Uppfærsla á tækjum í líkamsræktum Fjarðabyggðar

    Mál 2305096 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til kynningar bæjarráðs tillögu um uppfærslu á tækjabúnaði í líkamsræktum Fjarðabyggðar. Tæki yrði uppfærð innan fjárhagsramma næstu þriggja ára.

  15. 15. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 63 lögð fram til kynningar

  16. 16. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 64 lögð fram til kynningar

  17. 17. Starfshópur vegna íþróttamannvirkja

    Mál 2303018 Allur ferill málsins

    Framlögð drög erindisbréfs starfshóps um íþróttamannvirki og framtíðarstefnumótun í íþróttamálum í Fjarðabyggð til afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir framlagt erindisbréf.

  18. 18. Sameining ferðavefa undir visitausturland.is

    Mál 2305153 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa varðandi sameiningu ferðavefa undir visitausturland.is

    Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að hefja samtal við Austurbrú á grundvelli minnisblaðs.

  19. 19. Hafnarstjórn - 295

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 295. fundar hafnarstjórnar frá 15. maí lögð fram til afgreiðslu

    1. 19.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    2. 19.2 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
    3. 19.3 Fiskeldissjóður - umsóknir 20232301137
    4. 19.4 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20232305025
    5. 19.5 Aðalfundur Cruise Iceland 20232301226
    6. 19.6 Beiðni um styrk vegna Sjómannadagsins á Eskifirði 20232305104
  20. 20. Íþrótta- og tómstundanefnd - 119

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 119. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 16. maí lögð fram til afgreiðslu

    1. 20.1 Uppfærsla á tækjum í líkamsræktum Fjarðabyggðar
    2. 20.2 Rafrænt aðgengi íþróttamiðstöðva utan opnunartíma
    3. 20.3 Ungmennaráð - 6
  21. 21. Fræðslunefnd - 125

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 125. fundar fræðslunefndar frá 17. maí lögð fram til afgreiðslu.

    1. 21.1 Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu - rannsókn2301074
    2. 21.2 Haustþing Kennarasamband Austurlands KSA2304241
    3. 21.3 Ungmennaráð 20222203101
    4. 21.4 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
    5. 21.5 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
    6. 21.6 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
  22. 22. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 26. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu

    1. 22.1 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242305072
    2. 22.2 Ungmennaráð 20222203101
    3. 22.3 Ungmennaráð 20222203101
    4. 22.4 Til umsagnar frumvarp til laga 1028. mál frá Nefnda- og greiningarsviði Alþingis2305051
    5. 22.5 Líforkuver á dysnesi2305036
    6. 22.6 Berist til allra sveitarstjórna á landinu um skipulag skógræktar í landinu2305056
    7. 22.7 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Kross Mjóafirði2305043
    8. 22.8 Umsögn og ábending vegna skýrslu um vindorkumál 20232305066
    9. 22.9 Litlagerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2304260
    10. 22.10 Litlagerði 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2304259
    11. 22.11 Umsókn um lóð Lyngbakki 22305079
    12. 22.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Árgata 52305064
    13. 22.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Vallargerði 12305017
    14. 22.14 Umsókn um stækkun á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A2304256
    15. 22.15 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 2 Nesk2305007
    16. 22.16 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 4 Nesk2305005
    17. 22.17 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Fjarðarbraut 40b2305086
    18. 22.18 Deiliskipulag Nes- og Bakkagil2303368
    19. 22.19 Reglur um lóðarúthlutanir2302135
    20. 22.20 Umsókn um stöðuleyfi2305052
    21. 22.21 Samskiptastefna 2022-20262210143
    22. 22.22 Skólavegur 70A Fáskrúðsfirði - sala lóðarréttinda2304286
    23. 22.23 Naustahvammur 58 - Umsókn um lækkun á gatnagerðargjöldum fyrir nýbyggingu2302028
    24. 22.24 Ósk um stöðuleyfi fyrir svið á Eskjutúni2305105
    25. 22.25 Umsókn um lóð Ægisgata 12305108
    26. 22.26 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði2201189
    27. 22.27 Fundaáætlun USK 20232212113
  23. 23. Mannvirkja- og veitunefnd - 14

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 14. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 17. maí lögð fram til afgreiðslu.

    1. 23.1 Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 20242305071
    2. 23.2 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    3. 23.3 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    4. 23.4 Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir2001140
    5. 23.5 Eskifjarðarvöllur - uppbygging og staða2002143
    6. 23.6 Framtíð kaupa á skerðanlegri raforku til fjarvarmaveitna2305077
    7. 23.7 Erindi vegna jarðhita í Fjarðabyggð2305121
    8. 23.8 Ungmennaráð 20222203101
    9. 23.9 Samskiptastefna 2022-20262210143
  24. 24. Ungmennaráð - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð ungmennaráðs frá 13. apríl lögð fram til afgreiðslu.

    1. 24.1 Gjaldfrjálsar skólamáltíðir2011130
    2. 24.2 Breyting á skólatíma2011130
    3. 24.3 Sundkennsla2011130
    4. 24.4 Starfstími ungmennaráðs2011130