Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 14

17. maí 2023, kl. 16:00 til 19:20, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Elís Pétur Elísson, varaformaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 800 liður 23

    Fundargerð 14. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 17. maí lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 354 liður 3

    Fundargerð 14. fundar mannvirkja og veitunefndar frá 17. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Elís Pétur Elísson, Ragnar Sigurðsson og Þuríður Lillý Sigurðardóttir,

    Fundargerð 14. fundar mannvirkja- og veitunefndar er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024

    Mál 2305071 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri mætti á fund nefndarinnar og fór yfir fjárhagsáætlungerðina.

  2. 2. Framkvæmdasvið verkefni 2023

    Mál 2303230 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri framkvæmdasviðs fer yfir sýnar tillögur að forgangsröðun á framkvæmdum ársins. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir tillögur sviðsstjóra og felur honum að afla framkvæmdaleyfis. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna áfram tillögur að gatnaframkvæmdum.

  3. 3. Framkvæmdasvið verkefni 2023

    Mál 2303230 Allur ferill málsins

    Greinagerð fasteigna og framkvæmdafulltrúa lögð fram til kynningar.

  4. 4. Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir

    Mál 2001140 Allur ferill málsins

    Engar vísbendingar eru um að burðaþol þaksins sé ábótavant. Sviðsstjóra falið að kalla eftir endanlegri lokaskýrslu frá Mannvit.

  5. 5. Eskifjarðarvöllur - uppbygging og staða

    Mál 2002143 Allur ferill málsins

    Mannvirkja- og veitunefnd ræddi um verkefnið og ítrekar mikilvægi þess að til staðar sé skýr framtíðarsýn um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Fjarðabyggð. Vísað til starfshóps um íþróttamannvirki Fjarðabyggðar.

  6. 6. Framtíð kaupa á skerðanlegri raforku til fjarvarmaveitna

    Mál 2305077 Allur ferill málsins

    Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að svara orkusölunni samkvæmt fyrirliggjandi minnisblaði en ítrekar mikilvægi þess að núverandi samningar haldist óbreyttir.

  7. 7. Erindi vegna jarðhita í Fjarðabyggð

    Mál 2305121 Allur ferill málsins

    Mannvirkja og veitunefnd þakkar fyrir erindið. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að skoða möguleika á endurgreiðslu vegna vistvænnar hönnunar hitaveitu Eskifjarðar. Mannvirkja- og veitunefnd telur mikilvægt að skýr stefna sé til staðar við uppbyggingu hitaveitu í Fjarðabyggð.

  8. 8. Ungmennaráð 2022

    Mál 2203101 Allur ferill málsins

    Mannvirkja- og veitunefnd tekur undir erindi ungmennaráðs og felur forstöðumanni veitna að yfirfara lýsingu í sveitarfélaginu

  9. 9. Samskiptastefna 2022-2026

    Mál 2210143 Allur ferill málsins

    Mannvirkja- og veitunefnd þakkar kynninguna.