Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 13

21. apríl 2023, kl. 14:00 til 15:52, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Elís Pétur Elísson, varaformaður
  • Ívar Dan Arnarson, varamaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 796 liður 29

    Framlögð mannvirkja- og veitunefndar frá 21. apríl til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 352 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 21. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmdasvið verkefni 2023

    Mál 2303230 Allur ferill málsins

    Lögð fram lokaskýrsla Eflu vegna innivistar í Grunnskóla Eskifjarðar sem skilað var 19.apríl. Bæjarstjóri fór yfir ráðstafanir til að tryggja skólastarf út skólaárið vegna lokunar á 1.hæð grunnskólans. Unnið er að á framkvæmdarsviði að áætlun um viðgerðir við skólann á sumri komandi. Tekið fyrir hjá nefndinni á næsta fundi þegar áætlun liggur fyrir.

  2. 2. Framkvæmdasvið verkefni 2023

    Mál 2303230 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki sem trúnaðarmál við samning um malbikunarstöð vegna efnistöku í Reyðarfirði. Mannvirkja og veitunefnd samþykkir viðaukan og felur bæjarstjóra frágang hans og undirritun.

  3. 3. Tenging vatnsveitu við sumarbústaðarlandið í Skuggarhlíðarhálsi (Seldal)

    Mál 2304176 Allur ferill málsins

    Erindi sumarhúsaeiganda í Seldal lagt fram er varðar tengingu á vatnsveitu við sumarhúsabyggðina. Forstöðumanni veitna falið að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir nefndina á nýju.

  4. 4. Uppsetning Mílu á fjarskiptamastri á Fjarðabyggðahöllinni Reyðarfirði

    Mál 2304066 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur við Mílu varðandi fjarskiptamastur á Fjarðabyggðarhöllinni. Nefndir samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

  5. 5. Skólalóð Grunnskóla Reyðarfjarðar

    Mál 2304099 Allur ferill málsins

    Erindi frá stjórendum grunnskóla Reyðarfjarðar er varðar skipulag á skólalóð. Nefndir þakkar fyrir erindið og mun taka það inní fjárhagsáætlunar vinnu fyrir komandi ár. Framkvæmdasviði falið að halda utan um málið.

  6. 6. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði niðurstöður vegna úrgangsmála í Fjarðabyggð. Nefndin mun taka uppsetningu og rekstur grenndarstöðva til frekari útfærslu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Vísað til verkefnastjóra umhverfismála til vinnslu. Áfram verður unnið að innleiðingu klippikorta 1.júní næstkomandi samkvæmt fyrri samþykktum.