Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 796

24. apríl 2023, kl. 08:30 til 00:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 352 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Bref til bæjarstjórnar varðand Kirkjuból í Neskaupstað

    Mál 2301049 Allur ferill málsins

    Farið var málefni jarðarinnar Kirkjbóls með ábúendum.

  2. 2. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023

    Mál 2205294 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að uppfærðum breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum ásamt breyttu ferli við endurnýjun lóðaleigusamninga. Efnislega eru ekki breytingar á fyrri tillögu en framsetningu hefur verið breytt til samræmis við athugasemdir innviðaráðuneytisins.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna og vísar henni til síðari umræðu bæjarstjórnar.

  3. 3. Erindisbréf félagsmálanefndar

    Mál 1805116 Allur ferill málsins

    Framlagt uppfært erindisbréf fyrir félagsmálanefnd m.a. vegna breyting á hlutverkum nefndarinnar í barnaverndarmálum og því að rekstur hjúkrunarheimila hefur verið færður yfir til Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindisbréfið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar

    Mál 2205298 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að uppfærðu erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar en lítilsháttar breytingar hafa verið gerðar í samræmi við breytingar á samþykkt sveitarfélagsins um afgreiðslu á endurnýjun lóðarleigusamninga, gr. 12. um fullnaðarafgreiðslur.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindisbréfið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  5. 5. Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu

    Mál 2301026 Allur ferill málsins

    Framlagður milli umræðna uppfærður samningur um barnaverndarþjónustu milli Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt fylgiskjal um fullnaðarafgreiðsluheimildir.

    Bæjarráð samþykkir samning og fylgiskjal um fullnaðarafgreiðsluheimildir til síðari umræðu bæjarstjórnar.

  6. 6. Siðareglur kjörinna fulltrúa

    Mál 1805176 Allur ferill málsins

    Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram til endurskoðunar á fyrsta starfsári bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar með breytingu á 11. gr. og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. Kjarasamningar 2023 - áhrif nýrra kjarasamninga

    Mál 2304177 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað um áhrif breytinga á kjarasamningum sem staðfestir hafa verið fyrir árið 2023.

  8. 8. Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 1

    Mál 2304190 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023. Viðaukinn fjallar um áhrif gerðra kjarasamninga á launáætlun 2023.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar

    Mál 2304136 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar, tímasetningar við áætlunargerð ársins 2024 og minnisblaði fjármálastjóra um reglurnar.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með breytingum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  10. 10. Þróunarfélag um Grænan orkugarð

    Mál 2302181 Allur ferill málsins

    Framlögð sem trúnaðarmál niðurstaða verkefnavinnu með KPMG um Orkugarð í Fjarðabyggð sem leiðandi afl í orkuskiptum Íslands og mögulegrar stofnunar þróunarfélags um slíkan orkugarð.

  11. 11. Kauptilboð í Sólvelli 8B Breiðdalsvík

    Mál 2304182 Allur ferill málsins

    Lögð fram kauptilboð í íbúð að Sólvöllum 8B á Breiðdalsvík.

    Bæjarráð samþykkir að taka tilboði hæstbjóðanda sem er án fyrirvara. Bæjarstjóra falið að undirrita skjöl vegna sölunnar.

  12. 12. Framkvæmdasvið verkefni 2023

    Mál 2303230 Allur ferill málsins

    Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til umfjöllunar í bæjarráði lokaskýrsla Eflu verkfræðistofu vegna innivistar í Grunnskóla Eskifjarðar.

    Farið yfir ráðstafanir sem gripið er til vegna skólastarfs og starfsemi í húsnæðinu að Lambeyrarbraut 14 ásamt þeim aðgerðum sem þarf að ráðast í til undirbúnings endurbóta á húsnæðinu.

    Bæjarráð felur framkvæmda- og umhverfissviði að hefja undirbúning endurbóta á húsnæðinu og leggja fyrir áætlanir um endurbætur þess.

  13. 13. Uppsetning Mílu á fjarskiptamastri á Fjarðabyggðahöllinni Reyðarfirði

    Mál 2304066 Allur ferill málsins

    Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs samningi við Mílu um fjarskiptamastur á Fjarðabyggðarhöllinni er þjóna mun fjarskiptum um Reyðarfjörð og tryggja betra samband.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  14. 14. Skipulag almannavarna

    Mál 2105157 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð almannavarnarnefndar Austurlands frá 17. apríl 2023 ásamt minnisblaði um skipulag aðgerðastjórna og tillögur að útfærslu aðgerðarstjórnar á Austurlandi.

  15. 15. Umsókn um lóð Litlagerði 6

    Mál 2304045 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðin Litlagerði 6 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  16. 16. Kvörtun frá íbúum Álfabrekku Fáskrúðsfirði

    Mál 2304138 Allur ferill málsins

    Framlagður undirskriftarlisti íbúa við Álfabrekku Fáskrúðsfirði vegna snjóruðnings götunnar.

    Bæjarráð vísar erindi til mannvirkja- og veitunefndar.

  17. 17. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlannds fyrir 2022

    Mál 2304187 Allur ferill málsins

    Framlögð til afgreiðslu og kynningar fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands fyrir árið 2022. Lagt er til að A deild Skólaskrifstofu Austurlands um fræðslumál verði slitið ásamt því að rekstri á þjónustusvæði fatlað fólk á Austurlandi verði hætt um næstu áramót og aðildarsveitarfélögin sjálf taki við rekstri þjónustunnar. Með því verði byggðasamlagi um skrifstofuna slitið.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur aðalfundar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  18. 18. Boð Matvælaráðuneytisins til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis

    Mál 2304174 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Matvælaráðuneytinu varðandi boð til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis.

    Bæjarráð tekur þátt í samráðinu.

  19. 19. Mótum framtíðina saman

    Mál 2304185 Allur ferill málsins

    Framlagt boð til opins samráðsfundar með forsætisráðherra á Egilsstöðum 26. apríl n.k. um sjálbæra þróun á Íslandi.

  20. 20. Samtal um nýtingu vindorku - Orkuskipti

    Mál 2304184 Allur ferill málsins

    Starfshópur um orkuskipti hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku og verða niðurstöður hennar til umræðu á fundi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þann 4. maí.

  21. 21. Ársfundur Austurbrúar 2023

    Mál 2304186 Allur ferill málsins

    Framlagt ársfundarboð Austurbrúar 2023 en fundur verður haldinn 3 maí.

  22. 22. Aðalfundur SSA 2023

    Mál 2304010 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn fyrir aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn verður 3 maí.

  23. 23. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 59 og 60 lagðar fram til kynningar

  24. 24. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Fundargerð 922. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  25. 25. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Fundargerð 923. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  26. 26. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Fundargerð 924. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  27. 27. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 23. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 18. apríl lögð fram til afgreiðslu.

    1. 27.1 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    2. 27.2 Strandgata 98B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2304049
    3. 27.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Smiðjustígur 42304056
    4. 27.4 Umsókn um lóð Litlagerði 62304045
    5. 27.5 Framkvæmdaleyfi Fell skógrækt2304051
    6. 27.6 Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK2304061
    7. 27.7 Númerslausir bílar 20232304069
    8. 27.8 Deiliskipulag Nes- og Bakkagil2303368
    9. 27.9 Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði2304097
    10. 27.10 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt2208107
    11. 27.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 132304103
  28. 28. Fræðslunefnd - 124

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 19. apríl lögð fram til afgreiðslu.

    1. 28.1 Kennslutímamagn grunnskóla 2023-20242304102
    2. 28.2 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
    3. 28.3 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    4. 28.4 Hinsegin fræðsla í grunnskólum Fjarðabyggðar2304063
  29. 29. Mannvirkja- og veitunefnd - 13

    Fundargerðin í heild

    Framlögð mannvirkja- og veitunefndar frá 21. apríl til afgreiðslu.

    1. 29.1 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    2. 29.2 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    3. 29.3 Tenging vatnsveitu við sumarbústaðarlandið í Skuggarhlíðarhálsi (Seldal)2304176
    4. 29.4 Uppsetning Mílu á fjarskiptamastri á Fjarðabyggðahöllinni Reyðarfirði2304066
    5. 29.5 Skólalóð Grunnskóla Reyðarfjarðar2304099
    6. 29.6 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021