Bæjarráð, fundur 797
2. maí 2023, kl. 08:30 til 11:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 353 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Kristinn Þór Jónasson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir,Ragnar Sigurðsson, Birgir Jónsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 2. maí utan liðar 17 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Búsetuúrræði-Trúnaðarmál
Mál 2301106 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði áfram að málinu á grundvelli minnisblaðs.
-
2. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023
Mál 2303238 Allur ferill málsins
Framlögð drög að ráðningabréfi Deloitte vegna stöðuúttektar á stjórnsýslu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
-
3. Vegna kæru á hljóðmön - krafa um endurgreiðslu málskostnaðar.
Mál 2304306 Allur ferill málsins
Framlagt bréf vegna kröfu um endurgreiðslu málskostnaðar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
-
4. Málefni brothættra byggða
Mál 2103191 Allur ferill málsins
Verkefnastjóri brothættra byggða fór yfir verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður.
-
5. Suðurlandsvegur við Breiðamerkurlón
Mál 2304207 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi Guðmundar G. Norðdhal vegna Suðurlandsvegar við Breiðamerkurlón
-
6. Erindi vegna stöðu skjalasafns Norðfjarðar
Mál 2304217 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi Áslaugar Lárusdóttur vegna Skjalasafns Norðfjarðar.
Á fjárfestingaráætlun ársins er gert ráð fyrir lokaáfanga byggingar skjalasafnsins að Þiljuvöllum á Norðfirði og hillir undir flutning skjalasafnsins í varanlegt húsnæði.
Vísað til stjórnar Menningarstofu og Safnastofnunar.
-
7. Aðalfundarboð 2023 - Olíusamlagið
Mál 2304247 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð vegna aðalfundar Olíusamlags Útvegsmanna í Neskaupstað sem haldinn er 5. maí.
Bæjarráð samþykkir að fela Stefáni Þór Eysteinssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
8. Til umsagnar 945. mál um kosningalög frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Mál 2304258 Allur ferill málsins
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sent til umsagnar frumvarp til laga um kosningalög o.fl., 945. mál. Umsagnarfrestur er til 10. maí nk.
Vísað til formanns yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar.
-
9. Þróun hafnarsvæða
Mál 2108027 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál.
-
10. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023
Mál 2302095 Allur ferill málsins
Framlagðar til staðfestingar 3 umsóknir Fjarðabyggðar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stofnframlög f.h. Brákar íbúðafélags hses vegna byggingar 12 íbúða á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Jafnframt er lagt til að Fjarðabyggð samþykki veitingu stofnframlaganna í samræmi við minnisblað.
Bæjarráð samþykkir að veita umbeðið stofnframlag og umsókn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
-
11. Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21.apríl 2023
Mál 2304053 Allur ferill málsins
Fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
12. Skólavegur 70A Fáskrúðsfirði - sala lóðarréttinda
Mál 2304286 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni frá Minjavernd um heimild til að selja lóðarréttindi vegna Skólavegar 70A og gerð nýs lóðarleigusamnings.
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
-
13. Stjórnkerfisnefnd 2020-2023
Mál 2011203 Allur ferill málsins
Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd tekur til umfjöllunar tillögur bæjarstjóra að breytingum á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarstjóra og felur honum úrvinnslu tillögunnar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
14. Ráðning sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs
Mál 2304288 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga bæjarstjóra um starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
Bæjarstjóri leggur til að Svani Frey Árnasyni verði falið starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs til eins árs.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.
-
15. Viðauki um samning um kaup á malbikunarþjónustu
Mál 2304231 Allur ferill málsins
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd sem trúnaðarmáli viðauka við samning um malbikunarstöð frá 25.2.2020 vegna efnistöku í Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
16. Samskiptastefna 2022-2026
Mál 2210143 Allur ferill málsins
Framlögð minnisblöð upplýsingafulltrúa varðandi stefnu innri samskipta og samskipta-og vefstefnu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir stefnur fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar. Stefnur verði settar til árs til að byrja með og endurskoðaðar að þeim tíma liðnum.
-
17. Yfirtaka á gjafasjóðum vegna Hulduhlíðar
Mál 2304304 Allur ferill málsins
Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllu og afgreiðslu dagskrárliðar.
Framlagður tölvupóstur frá Góðvinum Hulduhlíðar þar sem óskað er eftir að félagið yfirtaki gjafasjóði Hulduhlíðar sem eru í fórum Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að afhenda sjóðina Góðvinum Hulduhlíðar til ráðstöfunar.
-
18. Fundagerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands 2023
Mál 2304305 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.