Bæjarráð, fundur 798
5. maí 2023, kl. 11:00 til 12:35, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 353 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 5. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Vallavinnusamningur 2023-2025
Mál 2303428 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi um rekstur knattspyrnuvalla við Knattspyrnufélag Austfjarða.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
2. Eskifjarðarvöllur - uppbygging og staða
Mál 2002143 Allur ferill málsins
Umræða um stöðu mála á Eskifjarðarvelli.
Vísað til mannvirkja og veitunefndar.
-
3. Umsókn um lóð Litlagerði 1
Mál 2304244 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðaumsókn Búðinga ehf. um lóðina að Litlagerði 1 á Reyðarfirði
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
4. Umsókn um lóð Búðavegur 57
Mál 2304232 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðaumsókn Sveins Óskars Sigurðssonar ehf. um lóðina að Búðavegi 57 á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
5. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2023
Mál 2305025 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð Aðalfundar Fiskmarkaðs Austurlands 2023 sem haldinn verður 16. maí 2023.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með fullt og ótakmarkað umboð á fundinum. Bæjarstjóri og fjármálastjóri sækja fundinn.
-
6. Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 25. maí
Mál 2305028 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar boð á ársfund Náttúruhamfaratrygginga Íslands sem fram fer 25. maí. Fundurinn er opinn og verður streymt.
-
7. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 925. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar
-
8. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
Mál 2302093 Allur ferill málsins
Fundargerð 61. og 62. fundar Orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar
-
9. Íþrótta- og tómstundanefnd - 117
Fundargerð 117. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 2. maí lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu 2023-2025
-
10. Hafnarstjórn - 294
Fundargerð 294. fundar hafnarstjórnar frá 2. maí lögð fram til afgreiðslu.
- 10.1 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
- 10.2 Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn2012071
- 10.3 Mjóeyrarhöfn, fylling annar áfangi2004076
- 10.4 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20232304128
- 10.5 Sjávarútvegsráðstefnan 20232303363
- 10.6 SeaTrade Europe 20232304050
- 10.7 Heimsókn hafnarstjórnar á hafnir2304307
- 10.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196
-
11. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 25
Fundargerð 25. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 2. maí lögð fram til afgreiðslu.
-
12. Starfsmannamál
Mál 2305037 Allur ferill málsins
Starfsmannamál fært til trúnaðarmálabókar.