Hafnarstjórn, fundur 294
2. maí 2023, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 798 liður 10
Fundargerð 294. fundar hafnarstjórnar frá 2. maí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 353 liður 3
Til máls tóku: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði
Mál 2208102 Allur ferill málsins
Lögð fram niðurstaða verðkönnunar í polla, forsteyptar einingar og holplötur fyrir framkvæmdina "Lenging Strandarbryggju". Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur hafnarstjóra að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
2. Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn
Mál 2012071 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað Eflu verkfræðistofu um möguleika tengdum landtengingu fyrir skip Cargow á Mjóeyrarhöfn.
-
3. Mjóeyrarhöfn, fylling annar áfangi
Mál 2004076 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar umsóknarbréf til Umhverfisstofnunar með ósk um heimild til vörpunar efnis í hafið.
-
4. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2023
Mál 2304128 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sjávarútvegsskóla unga fólksins er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2023. Hafnarstjórn samþykkir að veita sambærilegan styrk og undanfarin ár.
-
5. Sjávarútvegsráðstefnan 2023
Mál 2303363 Allur ferill málsins
Sjávarútvegsráðstefnan 2023 verður haldin í Hörpu 2.-3.nóvember næstkomandi.
-
6. SeaTrade Europe 2023
Mál 2304050 Allur ferill málsins
SeaTrade Europe sýningin verður haldin í Hamborg dagana 6.-8.september næstkomandi. Íslandsstofa hefur óskað eftir skráningum á sýninguna. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að svara bréfinu.
-
7. Heimsókn hafnarstjórnar á hafnir
Mál 2304307 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn ásamt hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna stefnir á að heimsækja starfsstöðvar Fjarðabyggðarhafna nú í maí og júní.
-
8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Mál 2301196 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 451. og 452. fundar Hafnasambands Íslands