Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 293

20. mars 2023, kl. 16:30 til 17:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 790 liður 20

    Fundargerð 293. fundar hafnarstjórnar frá 20. mars tekin til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 350 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 20. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss

    Mál 2206006 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskip dags. 27.febrúar 2023 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Ágúst Pál Tómasson, skipstjóra á Dettifossi. Hafnarstjórn samþykkir beiðni Eimskips um undanþágu.

  2. 2. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði

    Mál 2208102 Allur ferill málsins

    Lögð fram niðurstaða verðkönnunar í staura fyrir framkvæmdina "Lenging Strandarbryggju". Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði RJR og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs frágang og hafnarstjóra undirritun skjala þar um.

  3. 3. Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2103022 Allur ferill málsins

    Á 292.fundi hafnarstjórnar samþykkti hafnarstjórn að fara í uppsetningu á vef fyrir hafnirnar og fól verkefnastjóra í samstarfi við upplýsingafulltrúa að kanna með fleiri kosti í uppsetningu. Lagt fram minnisblað verkefnastjóra og upplýsingafulltrúa þar sem farið er yfir kosti í uppsetningu vefs fyrir hafnirnar. Hafnarstjórn samþykkir að fara í gerð vefs og felur verkefnastjóra hafna að vera í samstarfi við upplýsingafulltrúa um útfærslu vegna uppfærslu á heimasíðu sveitarfélagsins.

  4. 4. Umsögn vegna endurnýjunar hafnsöguréttinda

    Mál 2303129 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni frá Hafþóri Eide Hanssyni um umsögn hafnarstjórnar vegna endurnýjunar hafnsögumannsskírteinis. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna umsögn og felur verkefnastjóra hafna að ganga frá henni.

  5. 5. Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2023

    Mál 2302159 Allur ferill málsins

    Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2023. Hafnarstjórn samþykkir að veita sambærilegan styrk og síðustu ár.

  6. 6. Umsókn um styrk til bæjarhátíðina Støð í Stöð 2023

    Mál 2301108 Allur ferill málsins

    Umsókn um styrk fyrir bæjarhátíðina Stöð í Stöð 2023. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.

  7. 7. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar leyfi Fiskistofu vegna dýpkunar við Frystihússbryggjuna á Eskifirði.

  8. 8. Vinnustofa Hafið tekur ekki lengur við

    Mál 2211088 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samantektarskýrsla frá vinnustofunni "Hafið tekur ekki lengur við" sem fór fram 3.nóvember síðastliðinn.

  9. 9. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023

    Mál 2301196 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 450. fundar Hafnasambands Íslands