Hafnarstjórn, fundur 295
15. maí 2023, kl. 16:30 til 18:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 800 liður 19
Fundargerð 295. fundar hafnarstjórnar frá 15. maí lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 354 liður 4
Fundargerð 295. fundar hafnarstjórnar frá 15. maí, að undanskyldum lið nr. 6, lögð fram til umjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð 295. hafnarstjórnar, utan liðar 6, er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Mál 2305073 Allur ferill málsins
Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun hafnarstjórnar fyrir árið 2024.
-
2. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði
Mál 2208102 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju niðurstaða verðkönnunar í forsteyptar einingar og holplötur ásamt uppfærðri kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdina "Lenging Strandarbryggju". Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram á grundvelli umræðna á fundinum.
-
3. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
Mál 2301137 Allur ferill málsins
Sótt var um styrk til dýpkunar Eskifjarðarhafnar í Fiskeldissjóð 2023. Við úthlutun fengust 24,5 milljónir í styrk til verksins.
-
4. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2023
Mál 2305025 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2023 verður haldinn þriðjudaginn 16.maí. Hafnarstjórn tilnefnir Jónu Árnýju Þórðardóttur í stjórn Fiskmarkaðarins auk Snorra Styrkárssonar og munu þau sækja fundinn.
-
5. Aðalfundur Cruise Iceland 2023
Mál 2301226 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Cruise Iceland ásamt minnisblaði atvinnu- og þróunarstjóra sem sótti aðalfund Cruise Iceland 2023 sem haldinn var á Sauðárkróki 2. maí síðastliðinn.
-
6. Beiðni um styrk vegna Sjómannadagsins á Eskifirði 2023
Mál 2305104 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk frá Sjómannadagsráði Eskifjarðar til að standa straum af dagskrá Sjómannadagsins á Eskifirði 2023. Hafnarstjórn samþykkir að veita Sjómannadagsráði Eskifjarðar styrk í samræmi við afgreiðslu styrkja síðustu ár, að undanskildum sérstyrkjum vegna áhrifa Covid.