Hafnarstjórn, fundur 296
6. júní 2023, kl. 18:00 til 19:00, í Breiðdalssetri í Breiðdal. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 803 liður 9
Fundargerð 126. fundar hafnarstjórnar frá 6. júní lögð fram til umfjöllunar
Bæjarstjórn, fundur 356 liður 2
Fundargerð 296. fundar hafnarstjórnar frá 6. júni lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Fundargerð 296. fundar hafnarstjórnar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Mál 2305073 Allur ferill málsins
Forsendur fjárhagsáætlunar 2024 ræddar. Lagt fram yfirlit framkvæmda það sem af er árinu 2023. Hafnarstjóri fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu í hafnarstjórn.
-
2. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði
Mál 2208102 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað ásamt verkáætlun og greiðsluflæði fyrir framkvæmdina "Lenging Strandarbryggju". Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur hafnarstjóra og verkefnastjóra að vinna málið áfram.
-
3. Jafnréttisstefna 2023-2026
Mál 2305145 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til fagnefnda jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 til umfjöllunar og umræðu milli umræðna. Lagt fram til kynningar.
-
4. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Mál 2301196 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 453.fundar Hafnasambands Íslands