Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 297

19. júní 2023, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 804 liður 25

    Fundargerð 297. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024

    Mál 2305073 Allur ferill málsins

    Drög að starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024 lögð fyrir. Vísað til frekari vinnu við fjárhagsáætlunargerð.

  2. 2. Viðhald dráttarbátsins Vattar

    Mál 2306104 Allur ferill málsins

    Farið yfir viðhaldsmál dráttarbátsins Vattar. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur verkefnastjóra hafna að fylgja eftir áherslum í viðhaldsmálum bátsins.

  3. 3. Ósk um olíuafgreiðslu á Reyðarfjarðarhöfn

    Mál 2304110 Allur ferill málsins

    Lögð fram ósk Olís um olíuafgreiðslu á Reyðarfjarðarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir að Olís komi olíutanki og dælu fyrir á umbeðnum stað, að teknu tilliti til aðgengis að bryggjupollum og með fyrirvara um umsögn slökkviliðs Fjarðabyggðar.