Bæjarráð, fundur 804
26. júní 2023, kl. 08:30 til 13:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Birgir Jónsson, varamaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Engin tók til máls.
Dagskrá
-
1. Fasteignamat 2024
Mál 2306071 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra um breytingu á fasteignamati 2024 í Fjarðabyggð og möguleg áhrif þess á fasteignagjaldatekjur Fjarðabyggðar. Einnig yfirlit Byggðastofnunar um fasteignamat og fasteignagjöld árið 2023.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Lagður fram listi yfir fasteignir Fjarðabyggðar.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar og fagnefnda.
-
3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt fjármálastjóra á hugmyndum og tillögum nefnda um breytingar vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
Vísað til næsta fundar bæjarráðs og fjárhagsáætlunargerðar.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024
Mál 2305069 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs fyrir árið 2023.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
Mál 2305047 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- tómstundanefnd drögum að starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Mál 2305073 Allur ferill málsins
Vísað frá hafnarstjórn til umfjöllunar bæjarráðs drögum að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
7. Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024
Mál 2305071 Allur ferill málsins
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til umfjöllunar bæjarráðs drögum að starf- og og fjárhagsáætlun nefndarinnar 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
8. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024
Mál 2305070 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar bæjarráðs drögum að starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
Mál 2305048 Allur ferill málsins
Vísað frá fræðslunefnd til umfjöllunar bæjarráðs drögum að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
10. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
Mál 2305067 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn- menningarstofu og safnastofnunar til umfjöllunar bæjarráðs drögum að starfs- og fjárhagsáætlun 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
11. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Ívars Ingimarsson og Hrefnu Arnarsdóttur frá 11. júní vegna smölunar á ágangsfé í landi Óseyrar á Stöðvarfirði. Jafnframt er framlagt erindi Lögreglustjórans á Austurlandi um ágang búfjár.
Bæjarráð vísar erindi til fjallskilanefndar. Jafnframt er bæjarstjóra falið að senda Sambandi íslenskra sveitarfélagi erindi um gerð verklegsreglna á grunni álits innviðaráðuneytis um ágang búfjár og svara erindi lögreglustjórans.
-
12. Bréf til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar lausaganga búfjár
Mál 2306077 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Kristjans Beekmann þar sem skorað er á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að banna verði lagt við lausagöngu búfjár í Fjarðabyggð.
Bæjarráð vísar til núgildandi samþykktar um búfjárhald í Fjarðabyggð. Erindi er fram lagt og kynnt.
-
13. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi og stækkun á lóð
Mál 2304226 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Nes 1 þar sem lóð að Hjallaleiru 1 er stækkuð til austurs. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt breytinguna fyrir sitt leyti.
Bæjarráð staðfestir óverulega breytingu deiliskipulags með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
-
14. Umsókn Súlunnar um afnot af íþróttahúsinu á Stöðvarfirði
Mál 2306093 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Ungmennafélaginu Súlunni á Stöðvarfirði þar sem óskað er eftir að fá íþróttahúsið á Stöðvarfirði til afnota, gjaldfrjálst, vegna dansleiks þann 7. júlí 2023.
Bæjarráð samþykkir að styrkja ungmennafélagið sem nemi afnotum af íþróttahúsinu.
-
15. Erindi um samþykki á yfirfærslu Hitaveitu Fjarðabyggðar í einkahlutafélag
Mál 2301052 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar samskipti vegna umsóknar um að breyta rekstri Hitaveitunnar í einkahlutafélag.
-
16. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023
Mál 2302095 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar samþykktir HMS um stofnframlög til þriggja verkefna í Fjarðabyggð. Verkefnin verða unnin í samráði við Brák íbúðafélag hses.
Vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2023.
-
17. Drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038
Mál 2306081 Allur ferill málsins
Drög að samgömguáætlun 2024 - 2038 liggja fyrir í samráðsgátt. Frestur til að skila umsögn er til 31. júlí 2023.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að umsögn.
-
18. Boð Matvælaráðuneytisins til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis
Mál 2304174 Allur ferill málsins
Í kjölfar fundar matvælaráðuneytinsins um "Stefnumótun í lagareldi til árins 2040" hefur hagaðilum verið gefin kostur á að koma sjónarmiðum sínum skriflega á framfæri. Þess er óskað að það berist eigi síðar en 10. júlí nk.
Atvinnu- og þróunarstjóra falið að leggja fram umsögn fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
19. Ábendingakerfi 2024
Mál 2306158 Allur ferill málsins
Yfirferð yfir stöðu mála varðandi ábendingakerfi Fjarðabyggðar. Farið yfir svörun úr kerfinu og verkeferla við afgreiðslu erinda.
Vísað til frekari vinnslu og eftirfylgni hjá sviðsstjórum.
-
20. Fyrirspurn um húsnæðisuppbyggingu á Stöðvarfirði.
Mál 2305140 Allur ferill málsins
Eftirfylgni á erindi íbúasamtaka Stöðvarfjarðar varðandi húsnæðismál í Stöðvarfirði.
-
21. Járn- og bílhræ.
Mál 2306109 Allur ferill málsins
Framlagt erindi sem sent var til bæjarfulltrúa í Fjarðabyggð í tölvupósti og varðar járnarusl og bílhræ.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
-
22. Sorphirða og sorpförgun í Fjarðabyggð 2021-2025
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Farið yfir gildandi samninga varðandi sorphirðu og endurvinnslu úrgangs í Fjarðabyggð.
Málið tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs með verkefnastjóra umhverfismála.
-
23. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 929. fundar stjórnar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar
-
24. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 930. fundar stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
25. Hafnarstjórn - 297
Fundargerð 297. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 25.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
- 25.2 Viðhald dráttarbátsins Vattar2306104
- 25.3 Ósk um olíuafgreiðslu á Reyðarfjarðarhöfn2304110
-
26. Fræðslunefnd - 127
Fundargerð 127. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fræðslunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 26.1 Ungmennaráð 20222203101
- 26.2 Samskiptastefna 2022-20262210143
- 26.3 Jafnréttisstefna 2023-20262305145
- 26.4 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
-
27. Íþrótta- og tómstundanefnd - 121
Fundargerð 121. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 27.1 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
- 27.2 Vallavinnusamningur Búðargrund Fáskrúðsfirði
-
28. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 28
Fundargerð 28. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 28.1 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302173
- 28.2 Ystidalur 7 og 9 - Umsögn við athugasemdum á auglýsingartíma grenndarkynningar2304181
- 28.3 Umsókn um breytingu á deiliskipulagi og stækkun á lóð2304226
- 28.4 Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur2301019
- 28.5 Fundaáætlun USK 20232212113
- 28.6 Jafnréttisstefna 2023-20262305145
- 28.7 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
-
29. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 9
Fundargerð 9. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 29.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
- 29.2 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
- 29.3 Verkefni menningarstofu 20232301047
- 29.4 Samskiptastefna 2022-20262210143
- 29.5 Jafnréttisstefna 2023-20262305145
-
30. Mannvirkja- og veitunefnd - 17
Fundargerð 17. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð mannvirkja- og veitunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.