Bæjarráð, fundur 805
3. júlí 2023, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Engin tók til máls.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 26. júní 2023 og vinnslu þessa vísað til næsta fundar bæjarráðs og fjárhagsáætlunargerðar. Lögð fram samantekt fjármálastjóra á hugmyndum og tillögum nefnda um breytingar vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
Bæjarráð fór yfir tillögur og vísar þeim áfram til gerðar fjárhagsramma fyrir Fjarðabyggð og stofnanir 2024. Fjárhagsrammar lagðir fyrir bæjarráð í framhaldi til endanlegrar staðfestingar.
-
2. Umsókn í Orkusjóð vegna átaks í jarðhitaleit og frekari nýtingu jarðhita til húshitunar
Mál 2306203 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir fyrirhugaðri umsókn í Orkusjóð.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um vegna niðurdælingar á Eskifirði.
-
3. Sorphirða og sorpförgun í Fjarðabyggð 2021-2025
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Farið yfir úrgangsmál og þjónustu á mótttökustöðvum vegna innleiðingar á klippikortum.
-
4. Umsókn um lóð Stekkholt 19
Mál 2306099 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn um lóðina að Stekkholti 19 á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
5. Umsókn um lóð við Strandgötu 100 Eskifirði
Mál 2306177 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Jens Garðars Helgasonar vegna lóðarinnar að Strandgötu 100 á Eskifirði. Nefndin samþykkti lóðaúthlutunina með skilyrði um samkomulag um breytingu lóðarmarka við Strandgötu 98b.
Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar að útfærslu að lóð á svæðinu fyrir húsnæðið.
-
6. Ráðstefna Almannavarna 2023
Mál 2304035 Allur ferill málsins
Framlagt boð á ráðstefnu Almannavarna "Hvers vegna erum við öll almannavarnir" sem fram fer þriðjudaginn 17. október.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.
-
7. Kjarasamningar 2023 - áhrif nýrra kjarasamninga
Mál 2304177 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um áhrif breytinga á kjarasamningum sem staðfestir hafa verið fyrir árið 2023.
Bæjarráð vísar breytingum til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2023.
-
8. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Framlagt erindi landeiganda við Óseyri frá 29.6.23 vegna ágangsfjár.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið og vísar til fyrri bókunar um málefnið en það er til umfjöllunar fjallskilanefndar.
-
9. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að breytingu á formennsku í stjórn menningarstofu og safnastofnunar.
Framlögð tillaga um að Birta Sæmundsdóttir taki við formennsku af Pálínu Margeirsdóttur og Pálína taki við sem varformaður.
Bæjarráð staðfestir breytta skipan nefndarinnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu
-
10. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 931. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
11. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 29
Fundargerð fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 27. júní með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.
- 11.1 Stækkun lóða við Hjallaleiru2303218
- 11.2 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
- 11.3 Ný staðsetning gámasvæða2209189
- 11.4 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
- 11.5 Járn- og bílhræ2306109
- 11.6 Umsókn um lóð Stekkholt 192306099
- 11.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 10 (Holt)2306062
- 11.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 182306147
- 11.9 Ystidalur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2306106
- 11.10 Melbrekka 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2306153
- 11.11 Ímastaðir Innribær - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2306141
- 11.12 Umsagnarbeiðni um mál nr. 00312023 í skipulagsgáttinni2306117
- 11.13 Bréf Veðurstofunnar vegna íbúðabyggðar við Sæbakka, Neskaupstað2306118
- 11.14 Hættumat fyrir ofanflóð í Stöðvarfirði2306138
- 11.15 Umsókn um stöðuleyfi2306140
- 11.16 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20232301174
- 11.17 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302173
- 11.18 Strandgata 2 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2306135
- 11.19 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 232306164
- 11.20 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 34 Nesk2306163
- 11.21 Umsókn um lóð við Strandgötu 100 Eskifirði2306177