NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 29
27. júní 2023, kl. 14:30 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 805 liður 11
Fundargerð fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 27. júní með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Stækkun lóða við Hjallaleiru
Mál 2303218 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn vísar dagskrárlið til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar að nýju. Umhverfis- og skipulagsnefnd stendur við fyrri ákvörðun sína í ljósi þess að stækkun lóða fer út fyrir deiliskipulagsmörk. Einnig fer stækkunin út fyrir landnotkunarflokk iðnaðar- og athafnasvæðis og fer inn á landbúnaðarsvæði skv. Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040.
-
2. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira. Meirihluti Framsóknar og Fjarðalista samþykkir tillögu 3 í minnisblaði verkefnastjóra umhverfismála: Greining kostnaðarliða v/reksturs móttökustöðva. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir útfærslu á grenndarstöðvum og halda áfram vinnu við hagræðingu í rekstri á móttökustöðvum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Kristinn Þór Jónasson og Benedikt Jónsson sitja hjá.
-
3. Ný staðsetning gámasvæða
Mál 2209189 Allur ferill málsins
Ný staðsetning gámasvæða. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að ný staðsetning gámasvæðis á Reyðarfirði á Hjallaleiru og vísar erindinu í bæjarráð.
-
4. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Mál 2302213 Allur ferill málsins
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar, tillögur að samningsvæðum. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að yfirfara samning í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir nefnd að nýju. Nefndin samþykkir tillögur að samningssvæðum og nýja aðkomu að skógræktarsvæðinu.
-
5. Járn- og bílhræ
Mál 2306109 Allur ferill málsins
Járn- og bílhræ. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnisstjóra umhverfismála að skoða málið nánar í samráði við Heilbrigðiseftirlitið.
-
6. Umsókn um lóð Stekkholt 19
Mál 2306099 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Stekkholti 19, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 10 (Holt)
Mál 2306062 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Miðstræti 10 (Holt), Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18
Mál 2306147 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu.
-
9. Ystidalur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2306106 Allur ferill málsins
Ystidalur 5, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum gögnum hefur verið skilað með fyrirvara um grenndarkynningu.
-
10. Melbrekka 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2306153 Allur ferill málsins
Melbrekka 9, Reyðarfirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
11. Ímastaðir Innribær - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2306141 Allur ferill málsins
Ímistaðir Innribær - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir bogaskemmu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
12. Umsagnarbeiðni um mál nr. 00312023 í skipulagsgáttinni
Mál 2306117 Allur ferill málsins
Umsagnarbeiðni Múlaþings um mál: Snjóflóðavarnarkeilur norðan Öldugarðs, nr. 0031/2023: Kynning tillögu á vinnslustigi (Breyting á aðalskipulagi). Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingu á aðalskipulagi.
-
13. Bréf Veðurstofunnar vegna íbúðabyggðar við Sæbakka, Neskaupstað
Mál 2306118 Allur ferill málsins
Bréf Veðurstofunnar vegna íbúðabyggðar við Sæbakka, Neskaupstað til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
-
14. Hættumat fyrir ofanflóð í Stöðvarfirði
Mál 2306138 Allur ferill málsins
Farið yfir vinnu við hættumat í Stöðvarfirði og næstu skref. Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar fór yfir stöðu mála.
-
15. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2306140 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámsvæði Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámasvæði á Eskifirði.
-
16. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
Mál 2301174 Allur ferill málsins
Fundargerð 173. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
-
17. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Svör Eflu í samræmi við bóknun nefndarinnar þar sem óskað er
"..eftir nánari hönnunargögnum sem snúa að mótvægisaðgerðum er varðar hljóðsvist.."
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu til næsta fundar.
-
18. Strandgata 2 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2306135 Allur ferill málsins
Strandgata 2, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
19. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 23
Mál 2306164 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Miðstræti 23, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
20. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 34 Nesk
Mál 2306163 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Strandgötu 34, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
21. Umsókn um lóð við Strandgötu 100 Eskifirði
Mál 2306177 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð við Strandgötu 100 Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að úthluta lóðinni þegar búið er að ganga frá samkomulagi og lóðarmörkum við lóðarhafa á Strandgötu 98b. Erindinu er vísað í bæjarráð.