NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 28
13. júní 2023, kl. 08:15 til 09:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 804 liður 28
Fundargerð 28. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
Dagskrá
-
1. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Mótmæli íbúa Búðavegi 34, Fáskrúðsfirði, vegna grenndarkynningu á byggingu hljóðmanar við Hafnargötu 36, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að kalla eftir nánari hönnunargögnum sem snúa að mótvægisaðgerðum er varðar hljóðvist við Hafnargötu 36. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri tók sæti undir þessum lið.
-
2. Ystidalur 7 og 9 - Umsögn við athugasemdum á auglýsingartíma grenndarkynningar
Mál 2304181 Allur ferill málsins
Umsögn við athugasemdum á auglýsingartíma grenndarkynningar við Ystadal 7 og 9. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir málsmeðferð og niðurstöðu grenndarkynningar fyrir parhús að Ystadal 7 og 9. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara þeim er sendu athugasemdir vegna grenndarkynningarinnar.
-
3. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi og stækkun á lóð
Mál 2304226 Allur ferill málsins
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Nes 1 þar sem lóð að Hjallaleiru 1 er stækkuð til austurs. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óveruleg breyting á deiliskipulagi Nes 1 þar sem lóð að Hjallaleiru 1 er stækkuð til austurs og vísar erindinu í bæjarráð.
-
4. Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur
Mál 2301019 Allur ferill málsins
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi austurhluta Breiðdalsvíkur til auglýsingar. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
5. Fundaáætlun USK 2023
Mál 2212113 Allur ferill málsins
Fundaáætlun USK 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fundaáætlun með fyrirvara um smávægilegar breytingar á tímasetningu.
-
6. Jafnréttisstefna 2023-2026
Mál 2305145 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til fagnefnda jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 til umfjöllunar og umræðu milli umræðna. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026.
-
7. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira. Ekki fékkst samþykki fyrir því að taka inn liðinn og er málinu frestað og lagt fyrir fund að nýju.