NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 27
30. maí 2023, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Arnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
- Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 802 liður 11
Fundargerð 27. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 30. maí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 355 liður 4
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 30. maí utan liðar 10 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Mál 2201189 Allur ferill málsins
Tillaga að nýju deiliskipulagi Dalur athafnasvæði lagt fram til samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið fyrir sitt leyti og vísar erindinu í bæjarstjórn.
-
2. Borgarnaust 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2305247 Allur ferill málsins
Borgarnaust 5, Neskaupstað - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Umsókn um lóð Nesbraut 3
Mál 2305248 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhús að Nesbraut 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Unnið verður að útfærslu á nýju gámasvæði.
-
4. Umsókn um stækkun á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A
Mál 2304256 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu vegna misræmis í landeignaskrá.
-
5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hamarsgata 13
Mál 2305221 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Hamarsgötu 13, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Þórhólsgata 1
Mál 2305245 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Þórhólsgötu 1, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Heiðarvegur 21
Mál 2305118 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Heiðarvegi 21, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 3, Reyðarfirði
Mál 2305117 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Hafnargötu 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Mál 2305261 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi til gatnagerðar í Hrauntúni, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
10. Stækkun lóða við Hjallaleiru
Mál 2303218 Allur ferill málsins
Endurskoðun vegna stækkun lóða við Hjallaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd afturkallar ákvörðun um stækkun lóða 13-15-17-19. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerði mistök við samþykkt stækkunar. Umrædd stækkun fer út fyrir gildandi deiliskipulagsmörk svo ekki er um að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að fylgja málinu eftir.
-
11. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Mótmæli íbúa Búðavegi 34, Fáskrúðsfirði, vegna grenndarkynningu á byggingu hljóðmanar við Hafnargötu 36, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu fram að næsta fundi.
-
12. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2305223 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám neðan við Nesgötu 6. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám neðan við Nesgötu 6.
-
13. Vegna tjaldsvæðis á Stöðvarfirði
Mál 2305136 Allur ferill málsins
Minnisblað Austurbrúar vegna tjaldsvæðis á Stöðvarfirði lagt fram. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir minnisblaðið og mun hafa það í huga við gerð nýs deiluskipulags á svæðinu.
-
14. Fundaáætlun USK 2023
Mál 2212113 Allur ferill málsins
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur formanni nefndar að gera fundaáætlun útfrá umræðum á fundinum og leggja fyrir næsta fund.
-
15. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Hagræðingar í málaflokki úrgangsmála. Til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna tillögur í samræmi við umræður á fundinum.
-
16. 735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis
Mál 2204036 Allur ferill málsins
Breyting á deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði þannig að hluti þess sem nær inn á skipulagssvæði Dals athafnasvæðis verði felldur úr gildi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangnamunna á Eskifirði og vísar erindinu í til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
17. Fjarðarbraut 57 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2305274 Allur ferill málsins
Fjarðarbraut 57, Stöðvarfirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stækkun á bílskúr. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er undirskriftum íbúa Fjarðarbrautar 59 ásamt öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.