Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 26

16. maí 2023, kl. 08:15 til 10:45, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 800 liður 22

    Fundargerð 26. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 354 liður 5

    Fundargerð 26. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 16. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók: Þuríður Lillý Sigurðardóttir

    Fundargerð 26. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024

    Mál 2305072 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun 2024 í málefnum nefndarinnar. Fjármálastjóri mætir á fundinn. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.

  2. 2. Ungmennaráð 2022

    Mál 2203101 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umhverfis- og skipulagsnefndar ástandi á ruslatunnum á almenningssvæðum í Fjarðabyggð sem ungmennaráð hefur vakið athygli á. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindið og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

  3. 3. Ungmennaráð 2022

    Mál 2203101 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu ungmennaráðs um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefn þakkar erindið og felur verkefnastjóra umhverfismála að skoða útfærslur á málinu þegar núgildandi samningur um almenninssamgöngur rennur út.

  4. 4. Til umsagnar frumvarp til laga 1028. mál frá Nefnda- og greiningarsviði Alþingis

    Mál 2305051 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 1028. mál. Umhverfis- og skipulagsnefn þakkar kynninguna.

  5. 5. Líforkuver á dysnesi

    Mál 2305036 Allur ferill málsins

    Lagt er fyrir nefndina hugmynd að úrvinnsluferli fyrir dýrahræ, Starfssemin mun verða byggð upp í Eyjafirði og söfnunarferlar hannaðir m.a. inná Austurland ef áhugi er á samstarfi/viðskiptum. Lagt fram til upplýsinga um þá hugmyndavinnu sem er í gangi. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og fagnar áformum um uppbyggingu líforkuvers á Dysnesi.

  6. 6. Berist til allra sveitarstjórna á landinu um skipulag skógræktar í landinu

    Mál 2305056 Allur ferill málsins

    Berist til allra sveitarstjórna á landinu um skipulag skógræktar í landinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.

  7. 7. Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Kross Mjóafirði

    Mál 2305043 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Kross Mjóafirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Kross í Mjóafirði er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  8. 8. Umsögn og ábending vegna skýrslu um vindorkumál 2023

    Mál 2305066 Allur ferill málsins

    Umsögn og ábending vegna skýrslu um vindorkumál. Í síðasta mánuði kom út skýrsla á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um vindorkumál. Skýrslan er nú til umsagnar í samráðsgátt ráðuneytisins. Samtök orkusveitarfélaga hvetja aðildarsveitarfélögin til að senda umögn eða ábendingar um efni skýrslunnar í gegn um samráðsgáttina fyrir 18 maí nk.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar þeirri vinnu sem hafin er og þakkar skýrslu starfshóps um nýtingu vindorku. Enn er þó mörgum spurningum ósvarað og umtalsverð stefnumótunarvinna sem á eftir að eiga sér stað. Mikilvægt er að halda áfram þessari vinnu og taka til nánari skoðunar tekjuhlutdeild nærsamfélaganna og sveitarfélaga en samtök orkusveitarfélaga hafa vakið athygli á því síðustu misseri hversu mikið hallar á sveitarfélög þegar kemur að tekjum fyrir orkumannvirki.

  9. 9. Litlagerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2304260 Allur ferill málsins

    Litlagerði 1, Reyðarfirði fyrir parhús - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Áformin hafa verið kynnt nágrönnum og hafa þeir veitt samþykki sitt fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu telst þar með lokið. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  10. 10. Litlagerði 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2304259 Allur ferill málsins

    Litlagerði 7, Reyðarfirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  11. 11. Umsókn um lóð Lyngbakki 2

    Mál 2305079 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð að Lyngbakka 2, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni með fyrirvara um breytingu á byggingarreit og aðkomu að húsinu og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  12. 12. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Árgata 5

    Mál 2305064 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Árgötu 5, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  13. 13. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Vallargerði 1

    Mál 2305017 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Vallargerði 1, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  14. 14. Umsókn um stækkun á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A

    Mál 2304256 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu vegna misræmis í landeignaskrá.

  15. 15. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 2 Nesk

    Mál 2305007 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgötu 2, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  16. 16. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 4 Nesk

    Mál 2305005 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgötu 4, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  17. 17. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Fjarðarbraut 40b

    Mál 2305086 Allur ferill málsins

    Umsókn Fjarðabyggðar um endurnýjun á lóðaleigusamningi Fjarðarbraut 40b, Stöðvarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  18. 18. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil

    Mál 2303368 Allur ferill málsins

    Skipulags- og matslýsing fyrir Nes- og Bakkgil til samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulags- og matslýsingu fyrir Nes- og Bakkagil og vísar erindinu í bæjarráð.

  19. 19. Reglur um lóðarúthlutanir

    Mál 2302135 Allur ferill málsins

    Drög að nýjum reglum um lóðarúthlutanir kynntar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nýjar reglur um lóðarúthlutanir í Fjarðabyggð og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.

  20. 20. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2305052 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámasvæði Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámasvæði Reyðarfirði

  21. 21. Samskiptastefna 2022-2026

    Mál 2210143 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna en vekur athygli á ósamræmi í áætlunum um endurskoðun á samskiptastefnu. Auk þess vantar frekari skýringar á undirkaflanum "Merki Fjarðabyggðar".

  22. 22. Skólavegur 70A Fáskrúðsfirði - sala lóðarréttinda

    Mál 2304286 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar beiðni frá Minjavernd um heimild til að selja lóðarréttindi vegna Skólavegar 70A og gerð nýs lóðarleigusamnings. Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir heimild til að selja lóðarréttindi vegna Skólavega 70a.

  23. 23. Naustahvammur 58 - Umsókn um lækkun á gatnagerðargjöldum fyrir nýbyggingu

    Mál 2302028 Allur ferill málsins

    Ósk Nestaks um lækkun á gatnagerðargjöldum fyrir nýbyggingu að Naustahvammi 58, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd getur því miður ekki fallist á umsókn um lækkun á gatnagerðagjöldum. Nefndin telur þessa framkvæmd ekki falla undir 6. gr. laga nr. 153/2006.

  24. 24. Ósk um stöðuleyfi fyrir svið á Eskjutúni

    Mál 2305105 Allur ferill málsins

    Íbúasamtök Eskifjarðar óska eftir leyfi til að smíða svið á Eskju tún. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi í samráði við byggingarfulltrúa. Nefndin áréttar að stöðuleyfi þetta er gefið út með þeim skilyrðum að ekki komi til annarra nota á svæðinu og með fyrirvara um framtíðarskipulag á svæðinu. Einnig vill nefndin árétta að svæðinu sé skilað í því ástandi sem það er nú, þegar stöðuleyfi rennur út. Stöðuleyfi þetta gildir til lok árs 2025 með möguleika á endurnýjun.

  25. 25. Umsókn um lóð Ægisgata 1

    Mál 2305108 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð að Ægisgötu 1, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  26. 26. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði

    Mál 2201189 Allur ferill málsins

    Athugasemd Skipulagsstofnunar vegna deiliskipulags Dals athafnasvæðis. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna skipulagið áfram.

  27. 27. Fundaáætlun USK 2023

    Mál 2212113 Allur ferill málsins

    Fundaáætlun USK 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu.