Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 25

2. maí 2023, kl. 15:00 til 16:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 798 liður 11

    Fundargerð 25. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 2. maí lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 353 liður 4

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 3. maí utan liðar 3 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráð til mannvirkja- og veitunefndar til útfærslu. Framlagt minnisblað varðandi fyrirkomulag og kostnað við uppsetningu og rekstur grendarstöðva í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir að vísa opnun grenndarstöðva í Fjarðabyggð til fjárhagáætlunargerðar 2024. Fyrirkomulag þjónustu mótttökustöða á árinu 2023 verði endurskoðað með tilliti til þarfa fyrir lágmarksopnun til að þjónusta einstaklinga. Tillögur sem samþykktar voru fyrir 22. febrúar 2023 verði að öðru leyti útfærðar og komið í framkvæmd. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fresta opnunum grenndarstöðva til fjárhagsáætlunargerðar 2024, nefndin mun í samstarfi við starfsmenn vinna að nánari útfærslu að grenndarstöðvum.

  2. 2. Klifbrekkufossar í botni Mjóafjarðar.

    Mál 2304120 Allur ferill málsins

    Vakin er athygli á miklu álagi af völdum ferðamanna við Klifurbrekkufossa. Enginn vafi er að álagið á gróður og jarðveg hefur aukist þar undanfarin ár. Í bréfi NA er lagt til að brúa með einfaldri göngubrú, lækinn við bílastæðin. Það gæti stuðlað að betri umgengni í kringum þann læk. Brekkur og götur handan við lækinn munu eftir sem áður þurfa að þola talsvert rask. Búast má við jafnvel enn meira álagi á svæðið á næstu árum. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna erindið áfram í samráði við framkvæmdasvið.

  3. 3. Heimild til nýtingar varpstaða

    Mál 2304302 Allur ferill málsins

    Beiðni um heimild til nýtingar varpstaða á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar ekki nýtingu svæðissins árið 2023. Fyrirhugað er að auglýsa nýtingu svæðissins til dúntöku árið 2024. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að hafa samband við þá er málið varðar.

    Þuríður Lillý vék af fundi vegna vanhæfni undir þessum lið.

  4. 4. Ystidalur 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2304181 Allur ferill málsins

    Ystidalur 7, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi með fyrirvara um grenndarkynningu.

  5. 5. Ystidalur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2304180 Allur ferill málsins

    Ystidalur 9, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi með fyrirvara um grenndarkynningu.

  6. 6. Umsókn um lóð Litlagerði 1

    Mál 2304244 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir parhús að Litlagerði 1, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Nefndin áréttar að gert er ráð fyrir einbýli á lóðinni skv. gildandi deiliskipulagi.

  7. 7. Umsókn um lóð Búðavegur 57

    Mál 2304232 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir blandað íbúðarhús og þjónustu að Búðaveg 57, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  8. 8. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi og stækkun á lóð

    Mál 2304226 Allur ferill málsins

    Umsókn um breytingu á deiliskipulagi og stækkun á lóð að Hjallaleiru 1. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stækkun lóðar.

  9. 9. Stækkun lóðar Hótel Búðareyri að Búðareyri 6

    Mál 2304203 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að stækka lóðina. Tré beggja vegna gangstéttar verða utan lóðamarka. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  10. 10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnarbraut 15

    Mál 2304245 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hafnarbraut 15, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  11. 11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnarbraut 48, Neskaupstað

    Mál 2304139 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnarbraut 48, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  12. 12. Reglur um lóðarúthlutanir

    Mál 2302135 Allur ferill málsins

    Drög að nýjum reglum um lóðarúthlutanir kynntar. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu.

  13. 13. Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2023

    Mál 2304239 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2023 til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna.

  14. 14. Umsókn um stækkun á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A

    Mál 2304256 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Skólaveg 85a, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu.