Klifbrekkufossar í botni Mjóafjarðar.
Mál 2304120 Fyrst á dagskrá 2. maí 2023, síðast 11. maí 2023. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Í heiti málsins: Mjóifjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2023
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 25 liður 2
Vakin er athygli á miklu álagi af völdum ferðamanna við Klifurbrekkufossa. Enginn vafi er að álagið á gróður og jarðveg hefur aukist þar undanfarin ár. Í bréfi NA er lagt til að brúa með einfaldri göngubrú, lækinn við bílastæðin. Það gæti stuðlað að betri umgengni í kringum þann læk. Brekkur og götur handan við lækinn munu eftir sem áður þurfa að þola talsvert rask. Búast má við jafnvel enn meira álagi á svæðið á næstu árum. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna erindið áfram í samráði við framkvæmdasvið.
-
Bæjarstjórn, fundur 353 liður 4.2
Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 25“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.