Umsögn og ábending vegna skýrslu um vindorkumál 2023
Mál 2305066 Fyrst á dagskrá 16. maí 2023, síðast 25. maí 2023. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2023
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 26 liður 8
Umsögn og ábending vegna skýrslu um vindorkumál. Í síðasta mánuði kom út skýrsla á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um vindorkumál. Skýrslan er nú til umsagnar í samráðsgátt ráðuneytisins. Samtök orkusveitarfélaga hvetja aðildarsveitarfélögin til að senda umögn eða ábendingar um efni skýrslunnar í gegn um samráðsgáttina fyrir 18 maí nk.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar þeirri vinnu sem hafin er og þakkar skýrslu starfshóps um nýtingu vindorku. Enn er þó mörgum spurningum ósvarað og umtalsverð stefnumótunarvinna sem á eftir að eiga sér stað. Mikilvægt er að halda áfram þessari vinnu og taka til nánari skoðunar tekjuhlutdeild nærsamfélaganna og sveitarfélaga en samtök orkusveitarfélaga hafa vakið athygli á því síðustu misseri hversu mikið hallar á sveitarfélög þegar kemur að tekjum fyrir orkumannvirki.
-
Bæjarráð, fundur 800 liður 22.8
Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 26“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 354 liður 5.8
Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 26“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.