Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 30

11. júlí 2023, kl. 14:30 til 16:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 806 liður 24

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 11. júlí 2023 lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2302173 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu byggingarleyfis vegna hljóðveggs við Hafnargötu 36 á Fáskrúðsfirði.

    Farið yfir gögn sem borist hafa vegna grenndarkynningar vegna byggingarleyfis hljóðveggs.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að ljúka úrvinnslu athugasemda sem borist hafa vegna grenndarkynningar og leggja fyrir nefndina. Jafnframt óskar nefndin greinargerðar lögmanns sveitarfélagsins um stöðu málsins. Vegna sumarleyfa hefur ekki náðst að ljúka úrvinnslu málsins en því verður hraðað eins og kostur er að afloknu sumarleyfi.

  2. 2. Göngustígur utan við fótboltavöll, Stöðvarfirði

    Mál 2302030 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um styrk vegna framkvæmdaleyfis.

    Nefndin hefur ekki á forræði sínu styrkveitingar en vísar beiðni til bæjarráðs.

  3. 3. Uppsetning á útiæfingatækjum

    Mál 2107013 Allur ferill málsins

    Framlagt að nýju erindi Guðrúnar S. Guðmundsdóttur og Guðrúnar Smáradóttur um uppsetningu útiæfingatækja á Norðfirði.

    Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að finna hentugt svæði undir tækin í samráði við gefendur og garðyrkjustjóra og leggja fyrir nefndina.

  4. 4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18

    Mál 2306147 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Hlíðargötu 18 og stækkun lóðar.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning. Nefndin bendir á að brunahani er staðsettur á horni lóðar við bílastæði og taka þurfti tillit til þess vegna skipulags bílastæðis.

  5. 5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lundargata 4

    Mál 2307026 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings um Lundargötu 4 á Reyðarfirði.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og

    felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  6. 6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2306205 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Samvinnufélags útgerðarmanna Neskaupstað um hugmyndir um breikkun knattspyrnuvallar og stækkun lóðar undir knattspyrnuvöll.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera breytingu á deiliskipulagi miðbæjar á Norðfirði þar sem gert er ráð fyrir stækkun knattspyrnuvallarins í samræmi við tillögu sem lögð er fram. Skipulags- og umhverfisfulltrúa falið að leggja fyrir nefndina breytt deiliskipulag til afgreiðslu.

  7. 7. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil

    Mál 2303368 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að deiliskipulagi fyrir Nes- og Bakkagil á Norðfirði ásamt greinargerð skipulags.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

  8. 8. 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar

    Mál 1606100 Allur ferill málsins

    Framlagðar tillögur að breytingu á deiliskipulagi Fólkavangur Neskaupstaðar en lagðar eru til breytingar á afmörkun deiliskipulags við aðkomu að svæðinu vegna Stóralækjar vegna samræmingar við nýtt deiliskipulag fyrir Nes- og Bakkagil.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

  9. 9. Deiliskipulag Drangagil - endurskoðun

    Mál 2307048 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að breytingu deiliskipulags Svæðis 1 fyrir snjóflóðavarnir í Neskaupstað, Drangagilssvæðið en lagðar eru til breytingar á afmörkun deiliskipulags vegna samræmingar við nýtt deiliskipulag fyrir Nes- og Bakkagil.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

  10. 10. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022

    Mál 2112033 Allur ferill málsins

    Lagðar eru fram tillögur til kynningar frá Eflu, vegna umsóknar til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða við Búðarárfoss. Um er að ræða fyrsta hluta framkvæmdar sem er göngustígur frá vatnssöfnunartanki og áleiðis inn að Búðarárfossi.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd lýst vel á framlagðar tillögur.