Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 31

1. ágúst 2023, kl. 15:30 til 16:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 808 liður 10

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 1. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um lóð

    Mál 2307046 Allur ferill málsins

    Nestak sækir um lóðina Sólbakka 2 til 6 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni en vekur athygli á gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir 1,5 hæð.

  2. 2. Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2307089 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi frá Nestak fyrir fjölbýlishús að Sólbakka 2 til 6 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að grenndarkynningu lokinni og öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2306156 Allur ferill málsins

    Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2307108 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn um stækkun lóðarinnar Strandgata 18A á Norðfirði. Sótt er um stækkun á lóð samkvæmt upplýsingum og teikningu sem sent var á Svan Árnason þann 10.júlí 2023 en við komum ekki inn viðhengjum með hér. Sótt um stækkun á lóð til norðurs inn á land Fjarðabyggðar svo hægt sé að koma fyrir geymslukofa á lóð. Sótt er um stækkun upp á 8 metra til norðurs upp í gilið. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stækkun lóðar og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðaleigusamning.

  5. 5. Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði

    Mál 2302013 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Sterkum Stöðvarfirði þar sem lagðar eru fram hugmyndir að nýtingu Balans. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum og lýst vel á útfærslu á fyrirhuguðum almenningsgarði á Balanum, Stöðvarfirði. Nefndin kemur til með að hafa verkefnið til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024.

  6. 6. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu um innleiðingu á klippikortum á móttökustöðvum úrgangs í Fjarðabyggð. Gert er ráð fyrir því að frá og með 15. september þurfi einstaklingar og rekstraraðilar að framvísa klippikortum á gámavöllum við losun úrgangs. Eitt klippikort verði afhent hverju heimili án endurgjalds en eftir það verði innheimt gjald við afhendingu klippikorta. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur verkefnisstjóra umhverfismála að gera minnisblað er varðar þjónustustig móttökustöðva.

  7. 7. Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira

    Mál 2307135 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn um framkvæmdaleyfi frá Sigurði Baldurssyni. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og bendir á ábendingar og tillögur Náttúrustofu Austurlands og Fiskistofu. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir vék af fundi undir þessum lið.

  8. 8. Fjallskilanefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 13. júlí lögð fram til afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir fundargerð.

    1. 8.1 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2306063
    2. 8.2 Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins2302037
    3. 8.3 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    4. 8.4 Fjallskil og gangnaboð 20232307003
    5. 8.5 Sauðfé í þéttbýli - úrræði2103192
  9. 9. Fjallskilanefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 28. júlí lögð fram til afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir fundagerð.

    1. 9.1 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2306063
    2. 9.2 Fjallskil og gangnaboð 20232307003
  10. 10. Ystidalur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2306106 Allur ferill málsins

    Niðurstöður grenndarkynningar fyrir Ystadal 5, Eskifirði. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum gögnum hefur verið skilað.