NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 32
15. ágúst 2023, kl. 14:30 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 6
Fundargerð 32. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 15. ágúst tekin til umfjöllunar.
Engin tók til máls
Fundargerð 32. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur
Mál 2308005 Allur ferill málsins
Ósk um breytingu á deiliskipulaginu Miðbær Nesk útaf fótboltavelli. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í breytingar á deiliskipulagi Miðbær Neskaupstaðar.
-
2. Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði - Hafnargata 1 - Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 05 - Ósk um leyfisamþykki
Mál 2308019 Allur ferill málsins
Óskað er eftir leyfi/samþykki Fjarðabyggðar fyrir því að undir búa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir hönd Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi Hafnarsvæðis 05, Fáskrúðsfirði.
-
3. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju umsókn Loðnuvinnslunar um byggingarleyfi og byggingaráform vegna veggs sem fyrirhugað er að reisa á lóðinni Hafnargötu 36 á Fáskrúðsfirði ásamt minnisblaði Jóns Jónssonar lögmanns um stöðu sveitarfélagsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að svara athugasemd sem barst vegna grenndarkynningar og leggja fyrir á næsta fundi.
-
4. Umsókn um stækkun á Leirubakka 4, Eskifirði
Mál 2305250 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á Leirubakka 4, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi Leiru 1, Eskifirði.
-
5. Bréf frá Heilbrigðiseftirliti v. Hjallaleiru
Mál 2308001 Allur ferill málsins
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti v. Hjallaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og óskar jafnframt eftir því að nefndin verði upplýst um framgang mála. Mikilvægt er að vinna hratt og örugglega að málum er snúa að mengunarvörnum, umhverfi og ásýnd sveitarfélagsins.
-
6. Vangaveltur vegna smáhýsalóða á Breiðdalsvík
Mál 2308004 Allur ferill málsins
Vangaveltur vegna smáhýsalóða á Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og óskar eftir frekari útfærslu á verkefninu. Svæðið fellur undir landnotkunarflokkinn "Miðbær" og er það opið fyrir blandaðri byggð og þar með ýmsir möguleikar fyrir hendi varðandi uppbyggingu.
-
7. Umsón um leyfi fyrir uppsetningu skilta
Mál 2308007 Allur ferill málsins
Umsón um leyfi fyrir uppsetningu skilta. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýst vel á verkefnið og hvetur bréfritara að sækja formlega um framkvæmdaleyfi í íbúagátt sveitarfélagssins. Nefndin hefur ekki á forræði sínu styrkveitingar og vísar beiðni til bæjarráðs.
-
8. Helgustaðanáma aðstöðuhús
Mál 2308023 Allur ferill málsins
Umsókn um að fá að setja aðstöðuhús við Helgustaðanámu. Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að farið verði í breytingu á deiliskipulagi Helgustaðanámu.
-
9. Aðalskipulag br. skógrækt
Mál 2301094 Allur ferill málsins
Samantekt athugasemda við lýsingu og vinnslustillögu. Umhverhverfis- og skipulagsnefnd þakkar framlagðar athugasemdir og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram.
-
10. Umsókn um lóð Sæbakki 17
Mál 2308021 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Sæbakka 17, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
11. Ársskýrsla HAUST 2022
Mál 2307094 Allur ferill málsins
Ársskýrsla HAUST 2022. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
-
12. Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu
Mál 2308009 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til umhverfis- og skipulagsnefndar skipun fulltrúa í afmælisnefnd skipaða konum úr lystigarðsnefnd Nönnu auk fulltrúa/um frá Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkti að fulltrúar Fjarðabyggðar verði Helga Björk Einarsdóttir garðyrkjustjóri og vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar skipun eins fulltrúa að auki í afmælisnefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd tilnefnir verkefnisstjóra umhverfismála.
-
13. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
Mál 2010159 Allur ferill málsins
Deiliskipulag Mjóeyrarhafnar, viðbrögð eftir yfirferð Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir viðbrögð eftir yfirferð Skipulagsstofnunar og vísar erindinu í bæjarstjórn.
-
14. Umsókn um lóð Búðarmelur 7 a-b-c
Mál 2308059 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Búðarmelur 7 a-b-c, fh Búðinga ehf. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.