NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 33
29. ágúst 2023, kl. 14:30 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 811 liður 18
Fundargerð 33. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 358 liður 6
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.33 er tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.33 er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Kynnt hugmynd að útfærslu á úrgangsmálum. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna endanlega tillögu til samþykktar út frá umræðum á fundinum.
-
2. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Mál 2201189 Allur ferill málsins
Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags Dals athafnasvæðis á Eskifirði og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
3. 735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis
Mál 2204036 Allur ferill málsins
Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
4. Erindi til Umhverfis og skipulagsnefndar. Uppsetning á sólarsellum, vindmyllum og rafhlöðupakka
Mál 2303262 Allur ferill málsins
Erindi til umhverfis og skipulagsnefndar. Uppsetning á sólarsellum, vindmyllu og rafhlöðupakka. Umhverfis- og skipulagsnefnd líst vel á verkefnið og samþykkir uppsetningu á sólarsellum, vindmyllu og rafhlöðupakka.
-
5. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umsögn byggingarfulltrúa lögð fram. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
6. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2308037 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámsvæði Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á nýtt sameiginlegt gámasvæði á Símonartúni, Eskifirði.
-
7. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2308074 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámsvæði Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámasvæði á Fáskrúðsfirði.
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4
Mál 2308136 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Búðareyri 4, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að afla frekari gagna.
-
9. Framkvæmdaleyfi vegslóði Mjóafirði
Mál 2308146 Allur ferill málsins
Sótt er um framkvæmdaleyfi til þess að bæta smalaslóða sem liggur frá Reykjum í Mjóafirði út að Krossi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
10. Umsókn um lóð Hjallaleira 8
Mál 2308155 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhús að Hjallaleiru 8, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
11. Ný staðsetning gámasvæða
Mál 2209189 Allur ferill málsins
Flutningur gámasvæðis Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir sameiginlegt gámasvæði fyrir Reyðarfjörð og Eskifjörð á Símonartúni, Eskifirði.
-
12. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Lagt fram frá fjármálastjóra yfirlit yfir rekstur málaflokka fyrstu 6 mánuði ársins 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fresta áframhaldandi deiliskipulagsvinnu við íbúabyggð, Dalur 3, Eskifirði og Balinn, Stöðvarfirði. Vinna við deiliskipulag verður sett á fjárhagsáætlun næsta árs.