Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 34

12. september 2023, kl. 14:30 til 16:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 813 liður 10

    Fundargerð 34. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 359 liður 3

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr 34.lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 34 er staðfestar með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024

    Mál 2305072 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2024 í A hluta. Umhverfis- og skipulagsnefnd mun gæta aðhalds í rekstri á komandi ári og gæta þess að vera innan þess útgefins ramma.

  2. 2. Umsókn um lóð Stekkjargata 5 Nesk

    Mál 2309060 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Stekkjargata 5 Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókninni í ljósi þess að lóðin er ekki til úthlutunar að svo stöddu.

  3. 3. Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur

    Mál 2308005 Allur ferill málsins

    Uppdráttur með deiliskipulagsbreytingunni fyrir miðbæ Neskaupsstaðar. Samþykkt til grenndarkynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á deiliskipulagi miðbæ Neskaupsstaðar og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda hana í grenndarkynningu.

  4. 4. Breyting á deiliskipulagi Fólkvangur Neskaupstaðar

    Mál 2308172 Allur ferill málsins

    Umsögnum á kynningartíma svarað vegna breytingu á deiliskipulagi Fólkvangur Neskaupstaðar og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  5. 5. Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur

    Mál 2301019 Allur ferill málsins

    Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags austurhluta Breiðdalsvíkur og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  6. 6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4

    Mál 2308136 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að lóðarleigusamningi um Búðareyri 4. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar frá bæjarráði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu til næsta fundar.

  7. 7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gauksmýri 1

    Mál 2308073 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gauksmýri 1. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út nýjan lóðarleigusamning í samræmi við nýtt lóðarblað í viðhengi.

  8. 8. Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2307089 Allur ferill málsins

    Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar kynnt og byggingarleyfið lagt fram til endanlegrar afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  9. 9. Framkvæmdaleyfi - Stöðfirskir báta og skip

    Mál 2309014 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi - Stöðfirskir báta og skip. Umverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  10. 10. Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði

    Mál 2309019 Allur ferill málsins

    Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þykir mjög miður að ekki hafi tekist að finna framtíðar gámasvæði í Reyðarfirði. Nefndin fékk skipulagsfulltrúa til að kanna þær lóðir sem eru lausar en vegna fyrirhugaðrar atvinnuuppbyggingar á svæðinu var ekki hægt að finna lóð þar sem gámar gætu verið til frambúðar. Iðnaðarlóðir sveitarfélagsins eru mjög verðmætar hvort sem er á Hjallaleiru eða við Mjóeyrarhöfn og er því ekki hægt að taka þær til framtíðar. Með því að færa svæðið á Símonartún er verið að nota lóð í eigu sveitarfélagsins sem ekki verður notuð undir aðra starfsemi en skilgreind er sem iðnaðar- og geymslusvæði. Á svæðinu er gott aðgengi, rafmagn og lítil umferð stórra tækja eins og oft er á iðnaðarsvæðum. Einnig vill nefndin árétta að ekki er um lögbundna þjónustu og áður hafði gámasvæði fyrir Eskifjörð og Reyðarfjörð verið staðsett á Reyðarfirði en hefur því verið fundin betri staðsetning á Eskifirði.

  11. 11. Umsókn um leyfi til losunar efnis

    Mál 2309030 Allur ferill málsins

    Nestak óskar eftir því að fá leyfi að losa moldarefni sem fellur til við lóðargerð við Sólbakka 2-6 í land sem er neðan við Sæbakka. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Sveitarfélagið kemur ekki til með að taka þátt í kostnaði við frágang á svæðinu en áréttar bindingu rokgjarna efna.

  12. 12. Mála ruslatunnur

    Mál 2308164 Allur ferill málsins

    Minnisblað vegna málun á ruslatunnum í almenningsrýmum á Eskifirði. Framlagt að beiðni Elínar Rúnar Sizemore. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að Elín Rún fái leyfi til að mála og viðhalda með snyrtilegum hætti, fimm ruslatunnum á Eskifirði. Verkefnið er tilraunarverkefni og verður endurskoðað að ári.

  13. 13. Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði

    Mál 2309068 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins um undirgöng undir fagradalsbraut til að auka öryggi hestamanna- og kvenna við hesthúsahverfi í Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa og formanni nefndarinnar að koma á samtali við Vegagerðina.

  14. 14. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Minnisblað um fjölda tunna. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.