Bæjarráð, fundur 813
18. september 2023, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson
- Kristinn Þór Jónasson, varamaður
- Jón Björn Hákonarson
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 359 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 812 og 813. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Benedikt Jónsson og Jón Björn Hákonarson
Fundargerðir bæjarráðs nr. 812 og 813 eru staðfestar með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Yfirlýsing vegna kaupréttar
Mál 2209031 Allur ferill málsins
Framhald umræða um nýtingu mögulegs forkaupsréttar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við eiganda fasteignarinnar um nýtingu mögulegs forkaupsréttar og leggja fyrir bæjarráð að nýju niðurstöður viðræðna. Jafnframt að ræða við leigutaka um framhald leigu. Kristinn Þór Jónasson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, situr hjá við afgreiðslu málsins.
-
2. Haustþing SSA 2023
Mál 2309098 Allur ferill málsins
Boðað er til haustþings Sambands sveitarfélag á Austurlandi sem haldið verður í Fljótsdal fimmtudag 28. september til 29. september.
Fram lagt og kynnt en fulltrúar Fjarðabyggðar eru aðalmenn bæjarstjórnar.
-
3. Samgöngur í Fjarðabyggð
Mál 2309075 Allur ferill málsins
Framhald umræðu um samgöngumál í Fjarðabyggð, frá síðasta fundi bæjarráðs, um tillögu Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð að bókun um samgöngumál.
Kristinn Þór Jónsson leggur fram tillögu Ragnars Sigurðssonar Sjálfstæðisflokki að bókun:
"Fjarðabyggð leggur til breytta forgangsröðun í samgönguáætlun með göngum um Suðurfirði í stað uppbyggingar á Suðurfjarðarvegi og hringtengingar frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar. Sú breytta forgangsröðun er til hagræðingar í núgildandi samgönguáætlun sem og í vetrarþjónustu, eflir og stækkar atvinnusvæðið, gerir Fjarðabyggð að einni heild og eflir Suðurfirði.
Bæjarstjóra falið að óska eftir áherslubreytingum í svæðisskipulagi Austurlands."
Bókun frá fulltrúum Fjarðalista og Framsóknar í bæjarráði.
"Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa um árabil verið með það í forgrunni við samgönguyfirvöld að ráðast þurfi í endurbætur á Suðurfjarðarvegi og slíkt þoli ekki orðið neina bið líkt og kom fram í umsögn Fjarðabyggðar við drögum að samgönguáætlun sem samþykkt var samhljóða í bæjarstjórn í ágúst sl. Í forgangi er að gera nýjar brýr í botni fjarðanna sem Suðurfjarðarvegur liggur um í stað hættulegra einbreiðra brúa sem í þokkabót eru með þyngdartakmörkum sem farið er að standa samfélögunum í suðurhluta Fjarðabyggðar fyrir þrifum. Er hér um að ræða brú yfir Sléttuá í Reyðarfirði, brýr í botni Fáskrúðsfjarðar og brú í botni Stöðvarfjarðar. Samhliða því að gerðar verði nýjar tvíbreiðar brýr þarf að fara í endurbætur á veginum. Á boðaðri samgönguáætlun sem fer til umræðu á Alþingi nú í haust er brýnt að þessum framkvæmdum verði forgangsraðað fremst í komandi samgönguáætlun enda til orðinn ýmis gögn hjá samgönguyfirvöldum sem flýtt geta þessum framkvæmdum og sérstaklega þá gerð áðurnefndra brúa sem þola enga bið lengur. Sé vilji til hjá samgönguyfirvöldum að skoða fleiri kosti í endurgerð Suðurfjarðarvegar eins og jarðgöng þá leggst sveitarfélagið Fjarðabyggð ekki gegn slíku en með því fororði að slík skoðun má ekki fresta þessum brýnu framkvæmdum lengur. Samgöngubætur á Suðurfjarðarvegi þola enga bið lengur."
-
4. Jafnréttisstefna 2023-2026
Mál 2305145 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 en hún hefur verið uppfærð milli umræðna.
Bæjarráð samþykkir jafnréttisstefnu 2023 til 2026 og vísar henni til afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
5. Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni
Mál 2305266 Allur ferill málsins
Farið yfir málefni slökkviliðs.
-
6. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 932. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
7. Fræðslunefnd - 129
Fundargerð 129. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 7.1 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL2303071
- 7.2 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
- 7.3 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
- 7.4 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
- 7.5 Öruggara Austurland2308142
-
8. Hafnarstjórn - 300
Fundargerð 300. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 8.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
- 8.2 Umsókn um styrk til menningarverkefna 20232308165
- 8.3 Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu skilta2308007
- 8.4 Styrkumsókn vegna endurnýjunar utanborðsmótora2307133
-
9. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 11
Fundargerð 12. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 9.1 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL2303071
- 9.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
- 9.3 Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar2309072
- 9.4 Verkefni menningarstofu 20232301047
- 9.5 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
- 9.6 Björn Pálsson sjúkraflugmaður - beiðni um styrk vegna bókaútgáfu2307118
-
10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 34
Fundargerð 34. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 10.1 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242305072
- 10.2 Umsókn um lóð Stekkjargata 5 Nesk2309060
- 10.3 Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur2308005
- 10.4 Breyting á deiliskipulagi Fólkvangur Neskaupstaðar2308172
- 10.5 Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur2301019
- 10.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 42308136
- 10.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gauksmýri 12308073
- 10.8 Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2307089
- 10.9 Framkvæmdaleyfi - Stöðfirskir báta og skip2309014
- 10.10 Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði2309019
- 10.11 Umsókn um leyfi til losunar efnis2309030
- 10.12 Mála ruslatunnur2308164
- 10.13 Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði2309068
- 10.14 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
-
11. Íþrótta- og tómstundanefnd - 123
Fundargerð 129. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 11.1 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
- 11.2 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
- 11.3 Sumarfrístund 2023