NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 11
12. september 2023, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birta Sæmundsdóttir, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Elsa Guðjónsdóttir, aðalmaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 813 liður 9
Fundargerð 12. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 359 liður 4
Fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar nr. 11 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók: Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir
Fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar er staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Framlag yfirlit yfir rekstur málaflokksins fyrstu 6 mánuði ársins 2023.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
Mál 2305067 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu stjórnar menningarstofu og safnastofnunar fjárhagsramma menningarmála fyrir árið 2024.
Stjórnin felur sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna drög að fjárhagsáætlun og leggja fyrir stjórn tillögur á næsta fundi.
-
3. Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar
Mál 2309072 Allur ferill málsins
Búið er að opna fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands. Hlutverk Uppbyggingarsjóðs er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni sem falla að Sóknaráætlun Austurlands. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarverkefna. Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 16. október og lokar kl. 23:00.
-
4. Verkefni menningarstofu 2023
Mál 2301047 Allur ferill málsins
Forstöðumaður menningarstofu fór yfir verkefni sumarsins og þau sem eru á döfinni á næstu mánuðum.
-
5. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 2211009 Allur ferill málsins
Umræða um endurskoðun menningarstefnu og að haldin yrði menningarmót eða málstefna um menningarmál í Fjarðabyggð sem yrði efniviður inn í endurskoðun stefnunnar.
Stjórnin stefnir á að halda tvö menningarmót í nóvember, útfærsla og tímasetning rædd á næsta fundi.
-
6. Björn Pálsson sjúkraflugmaður - beiðni um styrk vegna bókaútgáfu
Mál 2307118 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Björns Pálssonar sjúkraflugmaður um styrk vegna bókaútgáfu.
Stjórnin samþykkir að veita styrk.