Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 12

26. september 2023, kl. 16:30 til 19:25, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Birta Sæmundsdóttir, formaður
  • Margrét Sigfúsdóttir, varamaður
  • Elsa Guðjónsdóttir, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
  • Benedikt Jónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 816 liður 16

    Fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá 26. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 360 liður 5

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Farið yfir gerð fjárhagsáætlunar, drög starfsáætlunar og áherslur en áætlun verður tekin fyrir á næsta fundi stjórnarinnar.

  2. 2. Gjaldskrá félagsheimila 2024

    Mál 2309058 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá félagsheimila 2024 lögð fram til umfjöllunar.

    Stjórn samþykkir að fela bæjarritara og forstöðumanni menningarstofu að ræða við Slysavarnardeildina Hafdísi um samræmingu gjaldskrár.

  3. 3. Gjaldskrá bókasafna 2024

    Mál 2309057 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá bókasafna 2024 lögð fram til umfjöllunar.

    Stjórnin óskar eftir upplýsingum um sektargjöld vegna bókaskila. Jafnframt er bæjarritara falið að leita álits forstöðumanna á gjaldskrármálum.

  4. 4. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025

    Mál 2309204 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá minjasafna 2025 lögð fram til umfjöllunar.

    Stjórnin samþykkir að hækka alla gjaldskrárliði um 100 kr.

    Stjórnin leggur til að felld verði út ákvæði um gjaldfrjálsan aðgang að söfnum gegn framvísun Fjarðabyggðarkorts en í stað þess verði tekin upp nýr gjaldskrárliður sem gildi í tiltekið safn og veiti aðgang í eitt ár að því safni. Gjaldið nemi 2.500 kr. Vísað til bæjarráðs.

  5. 5. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju umræða um menningarmót sem samþykkt var að halda í nóvember á tveimur stöðum sem hluta að undirbúningi fyrir endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar.

    Menningarmót verða tvö á milli kl. 17:00 og 18:30. Þann 14. nóvember í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði og 15. nóvember í Skrúð á Fáskrúðsfirði.

  6. 6. Lúðvíkshúsið endurbyggt

    Mál 1811023 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála í endurbyggingu Lúðvíkshúss að Þiljuvöllum og áætlanir um starfsemi þess.

    Stjórn vísar til mannvirkja og veitunefndar að framkvæmdum við endurbyggingu Lúðvíkshúss verði lokið á árinu 2024 og gert verði ráð fyrir fjármagni til verksins í fjárfestingaráætlun.