Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 13

10. október 2023, kl. 16:30 til 19:23, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Birta Sæmundsdóttir, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Elsa Guðjónsdóttir, aðalmaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Framlögð drög fjárhagsáætlunar menningarmála til umræðu ásamt drögum starfsáætlunar. Stjórn fór yfir launaáætlun að nýju og leggur til forgangsröðun í niðurskurði í launaáætlun og vísar tillögum til bæjarráðs samanber beiðni þess.

    Stjórn vísar tillögum sínum að fjárhagsáætlun fyrir menningarmálaflokkinn til afgreiðslu bæjarráðs. Starfsáætlun tekin síðar til umfjöllunar.

  2. 2. Gjaldskrá bókasafna 2024

    Mál 2309057 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá bókasafna 2024 lögð fram að nýju til umfjöllunar með upplýsingum um sektargjöld vegna bókaskila. Jafnframt framlagt álit forstöðumanna bókasafna á gjaldskrárbreytingum.

    Stjórnin samþykkir að fella út gjald fyrir afnot af bókum fyrir almenning og ákvæði um gjaldfrjáls afnot gegn framvísun Fjarðabyggðarkorts. Aðrir liðir gjaldskrár hækka um 5,8%. Vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Gjaldskrá félagsheimila 2024

    Mál 2309058 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá félagsheimila 2024 lögð fram til umfjöllunar að nýju eftir samráð við Slysavarnardeildina Hafdísi um samræmingu gjaldskrár Skrúðs við önnur félagsheimili.

    Stjórnin samþykkir gjaldskrána með 5,8% hækkun á gjaldskrárliðum. Vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025

    Mál 2309204 Allur ferill málsins

    Stjórn menningarstofu og safnastofnunar tók að nýju upp gjaldskrá minjasafna í Fjarðabyggð.

    Stjórn samþykkir minniháttar breytingar á gjaldskrá minjasafna og vísar henni að nýju til afgreiðslu bæjarráðs ásamt því að fela bæjarritara að útfæra hana í samræmi við áherslur á fundi.