Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 14

7. nóvember 2023, kl. 16:30 til 18:21, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Birta Sæmundsdóttir, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Elsa Guðjónsdóttir, aðalmaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 822 liður 17

    Fundargerð 14. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 363 liður 6

    Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofunar nr. 14 frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók: Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar nr. 14 frá 7. nóvember er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar starfsáætlun fyrir menningarmál eins og hún var lögð fyrir bæjarstjórn til fyrri umræðu.

  2. 2. Erindi varðandi niðurfellingu fasteignagjalda

    Mál 2310047 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar afgreiðsla bæjarráðs á erindi frá Víkinni fögru um styrk til greiðslu fasteignaskatts af Frystihúsinu í Breiðdal.

  3. 3. Bréf varðandi Egilsbúð

    Mál 2310119 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Árshátíðarnefndar HSA 2023 vegna Egilsbúðar á Norðfirði.

    Stjórnin felur bæjarritara að fara yfir þær ábendingar sem fram koma í erindi nefndarinnar.

  4. 4. Menningarmót í Fjarðabyggð

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Farið yfir undirbúning og skipulag dagskrár á menningarmótunum sem haldin verða 14. og 15. nóvember n.k.

    Unnið verður áfram að undirbúningi af hálfu menningarstofu ásamt stjórn þar sem mótað verði skipulag fyrir skemmtilegt mót.